22. maí 2025
29. ágúst 2019
Brunahætta af þurrkurum
Mannvirkjastofnun vekur athygli á innköllun Whirlpool á þurrkurum af gerðunum Indesit, Hotpoint, Creda, Swan og Proline vegna brunahættu sem af þeim getur stafað. Hættan stafar af því að ló getur komist í snertingu við hitald (hitaelement) og valdið bruna. Þurrkararnir voru framleiddir frá því í apríl 2004 þar til í september 2015 og voru seldir víða um Evrópu. Mannvirkjastofnun er kunnugt um að á Íslandi voru þurrkarar af gerðunum Hotpoint, Indesit og Creda seldir hjá Elko á því tímabili sem um ræðir. Hugsanlegt er að þeir hafi einnig verið boðnir fram af öðrum söluaðilum hér á landi.Whirlpool hafði áður birt öryggisviðvörun varðandi umrædda þurrkara en hefur nú innkallað þá.Rafföng: Þurrkarar.Framleiðandi/Vörumerki: Whirlpool, Indesit, Hotpoint, Creda, Swan og Proline.Hætta: Brunahætta.Þekktir söluaðilar á Íslandi: Elko.Sölutímabil: Frá 2004 til 2015.Mannvirkjastofnun beinir því til allra eigenda og notenda þurrkara sem brunahætta getur stafað af að hætta notkun þeirra þegar í stað og taka úr sambandi og hafa samband söluaðila og/eða framleiðanda.Sjá upplýsingar framleiðanda þar sem hægt er athuga hvort brunahætta geti stafað af þínum þurrkara.Sjá frétt í breska vefritinu The SunSjá fyrri umfjöllun á vef Mannvirkjastofnunar um öryggisviðvörun Whirlpool frá 2015 (sem nú er orðin að innköllun)Sjá fyrri umfjöllun á vef Mannvirkjastofnunar um öryggisviðvörun Elko frá 2016