27. mars 2026

HMS gefur út leiðbeiningar til söluaðila brunahólfandi innihurða

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • HMS hefur gefið út nýjar leiðbeiningar fyrir söluaðila brunahólfandi innihurða með áherslu á rekjanleika og áreiðanleg gögn um nothæfi.
  • Söluaðilar bera aukna ábyrgð á að veita réttar upplýsingar, afhenda nauðsynleg gögn og tryggja að hurðir séu markaðssettar fyrir rétt notkunarsvið.
  • Aðlögunartímabil hefur verið framlengt til 1. október 2026 – eftir það verður óheimilt að selja hurðir nema fullnægjandi gögn um nothæfi liggi fyrir.

HMS hefur gefið út leiðbeiningar til söluaðila brunahólfandi innihurða. Leiðbeiningarnar eru settar fram á grundvelli laga nr. 114/2014 um byggingarvörur og byggingarreglugerðar nr. 112/2012.

Leiðbeiningar

Mark­mið leið­bein­ing­anna

Markmið leiðbeininganna er að tryggja að brunahólfandi innihurðir sem settar eru á markað byggi á fullnægjandi og rekjanlegum gögnum um nothæfi. Áhersla er lögð á að merkingar og fylgiskjöl skulu vera þannig úr garði gerð að rekjanleiki hurðar gagnvart staðfestingu á nothæfi sé tryggður.

Ábyrgð og upp­lýs­inga­skylda sölu­að­ila

Í leiðbeiningunum er sérstaklega fjallað um upplýsingaskyldu og ábyrgð söluaðila. Þar kemur fram að seljendur skulu:

  • veita réttar og skýrar upplýsingar um eiginleika hurða, þar á meðal brunamótstöðu
  • afhenda kaupendum yfirlýsingu framleiðanda um nothæfi
  • afhenda kaupendum staðfestingu HMS á nothæfi hurðargerðar
  • afhenda leiðbeiningar um uppsetningu, notkun og viðhald
  • tryggja að hurðir séu einungis markaðssettar fyrir þá notkun sem þær hafa staðist prófun fyrir.

Jafnframt er lögð áhersla á að neytendur og eigendur mannvirkja hafi aðgang að fullnægjandi upplýsingum til að geta uppfyllt lögbundnar skyldur sínar um brunavarnir og tryggt öryggi mannvirkisins og þeirra sem dvelja í því.

Gögn sem þurfa að liggja fyr­ir til að afla stað­fest­ing­ar HMS á not­hæfi hurð­ar­gerða

Leiðbeiningar HMS skýra hvaða gögn þurfa að liggja fyrir, þar á meðal:

  • yfirlýsing framleiðanda um nothæfi
  • staðfesting viðurkennds aðila innan EES á nothæfi hurðargerðar (þá er um að ræða gagnkvæma viðurkenningu, sjá nánar hér)
  • staðfestar leiðbeiningar framleiðanda um uppsetningu, notkun og viðhald
  • HMS er heimilt að kalla eftir niðurstöðu gerðarprófunar

Brunahólfandi innihurðir falla ekki undir samhæfðan evrópskan staðal og eru því ekki CE-merkingaskyldar. Þær skulu þó ávallt uppfylla kröfur byggingarreglugerðar um brunaöryggi.

Að­lög­un­ar­tíma­bil fram­lengt til 1. októ­ber 2026

Aðlögunartímabil vegna breytinga á verklagi HMS hefur verið framlengt um sex mánuði og gildir til 1. október 2026. Frá og með þeim degi verður óheimilt að setja á markað, selja eða afhenda brunahólfandi innihurðir nema fyrir liggi fullnægjandi og rekjanleg gögn um nothæfi þeirra. HMS áskilur sér þó rétt til að skoða sérstaklega mannvirki sem falla í hærri áhættuflokk með tilliti til brunavarna.  

Hurðir sem seldar eru fyrir lok aðlögunartímabilsins má þó setja upp eftir þann tíma, enda sé hægt að sýna fram á með skýrum hætti að sala hafi átt sér stað innan frestsins.

Sjá nánar frétt hér.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS