1. apríl 2026

Nítján sveitarfélög hafa enn ekki skilað inn húsnæðisáætlunum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Áætlanir sem ná til tæplega 65% landsmanna eru enn óstaðfestar
  • Tafir á skilum draga úr yfirsýn og auka hættu á að ákvarðanir um húsnæðismál séu teknar út frá úreltum upplýsingum
  • Meira en tveir mánuðir eru liðnir frá lögbundnum skilafresti

Einungis 43 af 63 sveitarfélögum hafa skilað inn til HMS staðfestum húsnæðisáætlunum fyrir árið 2026. Húsnæðisáætlanir eru lykilverkfæri við skipulag og stefnumótun í húsnæðismálum og veita mikilvæga yfirsýn yfir húsnæðismál um allt land.

Ábyrgð sveitarfélaga er mikil þegar kemur að húsnæðismálum og þeirra hlutverk er meðal annars að leysa húsnæðisþörf þeirra sem þarfnast aðstoðar við húsnæðisöflun. Útgáfa tímanlegra húsnæðisáætlana er mikilvægur liður í hlutverki sveitarfélaganna í að skapa svigrúm til þess að hægt sé að byggja í samræmi við þörf til næstu ára.

Samkvæmt lögum um húsnæðismál ber sveitarfélögum að skila fullunnum húsnæðisáætlunum til HMS fyrir 20. janúar ár hvert.

Skil hús­næð­is­á­ætl­ana á rétt­um tíma skipta máli

Húsnæðisáætlunum er ætlað að gefa heildstæða mynd af stöðu húsnæðismála í hverju sveitarfélagi. Í þeim er að finna greiningu á eftirspurn og framboði ólíkra húsnæðistegunda, mat á framtíðarþörf íbúðarhúsnæðis og umfjöllun um hvernig sveitarfélög hyggjast mæta húsnæðisþörf heimila til skemmri og lengri tíma.

Áætlanirnar eru því mikilvæg forsenda þess að hægt sé að leggja raunhæft mat á húsnæðisþörf og bera hana saman við fyrirhugaða uppbyggingu. Þær eru grunnur að ákvörðunum um skipulag, lóðaframboð, innviðauppbyggingu og forgangsröðun í húsnæðismálum.

Þegar þær berast seint eða ekki þurfa stjórnvöld og aðrir hagaðilar að byggja mat sitt á ófullnægjandi eða úreltum upplýsingum. Það eykur hættuna á að brugðist sé of seint við vaxandi húsnæðisþörf eða að uppbygging ráðist af röngum forsendum. Þetta vegur sérstaklega þungt þegar um er að ræða fjölmenn sveitarfélög þar sem tafir á skilum hafa áhrif á stóran hluta landsmanna.

Reykja­vík, Kópa­vog­ur og Hafn­ar­fjörð­ur eiga eft­ir að skila

Sveitarfélög sem ekki hafa skilað inn húsnæðisáætlunum til HMS eru eftirfarandi:

Sam­an­­tekt hús­næð­is­á­ætl­­ana 2025 er í vinnslu

Samantekt húsnæðisáætlana síðasta árs er nú í vinnslu hjá HMS og verður birt að loknum páskum. Þar verður meðal annars farið yfir mun á spáðri og raunverulegri fólksfjölgun, umfang íbúðauppbyggingar miðað við áætlanir og hvernig lóðaúthlutanir gengu á árinu.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS