31. mars 2026

Skýrsla um stöðuna á leigumarkaði 2026 er komin út

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Leigjendur upplifa minna húsnæðisöryggi þegar leigt er af einstaklingum
  • Stjórnvöld styðja við leigjendur hér á landi með sambærilegum hætti og á hinum Norðurlöndunum
  • HMS hefur heimild til að sekta leigusala sem sinna ekki skráningarskyldu

Leigumarkaðurinn á Íslandi hefur stækkað samhliða örri fólksfjölgun og miklum húsnæðisverðshækkunum á undanförnum árum. HMS telur að um 28% fullorðinna hafi verið á leigumarkaði hér á landi á árinu 2025, þó flestir sem hafa tök á kjósi að búa í eigin húsnæði.

Húsnæðisaðstæður leigjenda hér á landi eru að jafnaði lakari en þeirra sem búa í eigin húsnæði, og að mörgu leyti lakari en húsnæðisaðstæður leigjenda á hinum Norðurlöndunum. Húsnæðisstuðningur stjórnvalda við leigjendur hér á landi er þó í megindráttum sambærilegur því sem þekkist í samanburðarlöndum.

Þetta er meðal þess sem fjallað er um í nýrri skýrslu HMS um stöðuna á leigumarkaði sem nálgast má með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Staðan á leigumarkaði 2026

Leigj­end­ur upp­lifa minna hús­næð­is­ör­yggi þeg­ar leigt er af ein­stak­ling­um

Búsetukannanir HMS leiða í ljós að um 94% húsnæðiseigenda telja sig búa við húsnæðisöryggi samanborið við um 52% leigjenda. Á sama hátt telja um 3% húsnæðiseigenda sig ekki búa við húsnæðisöryggi á meðan hlutfallið er 32% á meðal leigjenda.

Gera má ráð fyrir að um það bil 60% leigjenda hér á landi búi í leiguíbúðum sem eru í eigu einstaklinga á meðan hlutdeild fagleigusala er lítil. Leigjendur sem leigja af einstaklingum á almennum markaði virðast upplifa minna húsnæðisöryggi en þeir sem leigja af fagleigusölum, hvort sem það eru hagnaðardrifin eða óhagnaðardrifin leigufélög.

Takmarkað húsnæðisöryggi þeirra sem leigja af einstaklingum kann að skýrast af því að leigusamningar um íbúðir á vegum einstaklinga eru yfirleitt tímabundnir og því ríkir oft óvissa um húsnæðisaðstæður leigutaka að leigutíma loknum.

Leigjendur nefna einnig áhyggjur af því að íbúðin verði seld ofan af þeim, en leiguíbúðum á vegum einstaklinga er oft ekki ætlað að vera í útleigu nema til skamms tíma. Enn fremur nefna leigjendur hátt leiguverð sem orsök húsnæðisóöryggis á leigumarkaði, en sökum hás hlutfalls einstaklingsleigusala er nokkuð sterk fylgni á milli leiguverðs og greiðslubyrðar húsnæðislána.

Hús­næð­is­stuðn­ing­ur stjórn­valda við leigj­end­ur er sam­bæri­leg­ur á Norð­ur­lönd­un­um

Stjórnvöld styðja við leigjendur hér á landi með tvennum hætti. Annars vegar eru greiddar húsnæðisbætur til tekju- og eignalágra leigjenda, en bæturnar hafa það að markmiði að draga úr húsnæðiskostnaði og stuðla að auknu húsnæðisöryggi heimila á leigumarkaði, óháð því hvers konar leiguhúsnæði þau búa í. Hins vegar styðja stjórnvöld við aukið framboð á hagkvæmu leiguhúsnæði fyrir tekju- og eignalága með veitingu stofnframlaga, sem leggja grunn að almenna íbúðakerfinu.  

Stjórnvöld á hinum Norðurlöndunum styðja við leigjendur með sambærilegum hætti. Öll Norðurlöndin hafa til að mynda stutt við uppbyggingu hagkvæms leiguhúsnæðis með einum eða öðrum hætti. Húsnæðisbætur eru jafnframt greiddar á öllum Norðurlöndunum og eru í flestum tilvikum tekjutengdar en misjafnt er hvort þær séu eingöngu greiddar til leigjenda eða einnig til þeirra sem búa í eigin húsnæði.

Leigusal­ar sem sinna ekki skrán­ing­ar­skyldu leigu­samn­inga geta átt von á sekt

HMS telur að um 50 þúsund heimili séu á leigumarkaði í dag, en leiguskrá HMS hefur aðeins að geyma um 30 þúsund gilda leigusamninga sem taldir eru vera um virka leigu. Því gætu allt að 20 þúsund heimili á leigumarkaði verið með óskráðan leigusamning.

Almenn skráningarskylda leigusamninga, sem var ein af tillögum HMS til úrbóta í Vegvísi leigumarkaðar árið 2025, var innleidd í upphafi árs til að bæta yfirsýn yfir leigumarkaðinn. Þrátt fyrir það hefur nýskráðum leigusamningum ekki fjölgað umfram það sem eðlilegt þykir eftir að skráningarskyldan tók gildi. Viðbúið er að það taki nokkurn tíma fyrir þá leigusamninga sem áður voru ekki skráningarskyldir að skila sér í leiguskrá, en HMS mun fylgjast grannt með skráningum leigusamninga á næstu mánuðum.

Samkvæmt húsaleigulögum hefur HMS heimild til þess að sekta leigusala sem brjóta gegn skráningarskyldu. HMS hyggst nýta þessa heimild, finnist skýr dæmi um leigusamninga sem ekki hafa verið skráðir, en til þess getur stofnunin stuðst við eigin gögn og gögn úr skattframtölum einstaklinga.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS