21. febrúar 2025
18. febrúar 2025
40 verkefni fengu styrki til rannsókna og nýsköpunar á sviði mannvirkjagerðar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Fjörutíu nýsköpunar- og/eða rannsóknarverkefni fengu í dag styrkúthlutun úr Aski – mannvirkjarannsóknasjóði. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í húsakynnum HMS en hér má sjá upptöku af viðburðinum.
Um er að ræða úthlutun ársins 2024. Þetta er fjórða úthlutun sjóðsins sem stofnaður var árið 2021 og hefur það hlutverk að veita styrki til nýsköpunar- og mannvirkjarannsókna með áherslu á aukna þekkingu, umbætur og nýsköpun til að mæta samfélagslegum áskorunum á sviði mannvirkjagerðar.
Sjóðurinn er fjármagnaður af tveimur ráðuneytum en umsýsla hans er í höndum HMS. Alls bárust 70 umsóknir í Ask í ár og var sérstakt fagráð skipað til að meta umsóknirnar. Verkefnin sem fengu styrk snúa meðal annars að rannsóknum á vistvænum byggingarefnum, orkunýtingu mannvirkja og gæðum í mannvirkjagerð. Alls var úthlutað 182 milljónum króna.
Upplýsingar um verkefnin og styrkþega úr Aski árið 2024.
Áhersla á nýsköpun og vistvæna mannvirkjagerð
Sjóðurinn veitir styrki í fimm áhersluflokkum sem snúa einkum að samfélagslegum áskorunum í byggingariðnaði, svo sem rakaskemmdum í mannvirkjum og aðgerðum til lækkunar kolefnisspors. Við hverja úthlutun er horft til þarfa, eðlis og áskorana á sviði mannvirkjagerðar, áherslu á nýsköpun og markmiða um sjálfbærni.
Áætlað er að mannvirkjaiðnaður beri ábyrgð á allt að 40% af kolefnisspori á heimsvísu og því ljóst að þar liggja tækifæri til úrbóta, enda eiga flest verkefnin það sammerkt að hafa umhverfislegan ávinning.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS