Mannvirkjaskrá
Mannvirkjaskrá
Um mannvirkjaskrá
Um mannvirkjaskrá
Í mannvirkjaskrá er að finna upplýsingar um stærðir og eiginleika mannvirkja, framvindu á byggingartíma, upplýsingar sem nýtast við eftirlit með mannvirkjagerð, svo sem byggingarleyfi, úttektir byggingarstjóra og byggingarfulltrúa. Einnig er hægt að skoða fjölda íbúða í byggingu eftir byggingarstigi. Mannvirkjaskráin auðveldar yfirsýn á húsnæðismarkaði og gerir stjórnvöldum og öðrum hagaðilum kleift að bæta áætlanagerð og koma í veg fyrir miklar framboðssveiflur með tilheyrandi verðhækkunum húsnæðis og áhrifum á verðbólgu.
Mannvirkjaskrá er einnig mikilvægt stjórntæki á sviði eftirlits með mannvirkjagerð. Með henni er stjórnsýsla gagnsærri og eftirlit auðveldara sem stuðlar að mati sérfræðinga að meiri gæðum í mannvirkjagerð og þar af leiðandi mannvirki á Íslandi öruggari gagnvart hvers kyns tjóni.
Við mannvirkjaskránni er skráningarviðmót fyrir byggingarfulltrúa og skoðunarmenn, þar sem aðgengi að skoðunarhandbókum byggingarreglugerðar er til staðar. Ásamt því að bjóða uppá mælaborð sem nýtist sveitarfélögum og HMS sem eftirlitstæki, þar sem hægt er að greina upplýsingar sveitarfélaga á einfaldan hátt.