21. janúar 2025

Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,64 prósent í desember

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Vísitala íbúðaverðs lækkaði í desember, en síðast lækkaði vísitalan í september síðastliðnum
  • Íbúðaverð hækkaði um 7,72 prósent á milli desembermánaða 2023 og 2024, á sama tíma og verðbólga mældist 4,8 prósent
  • Íbúðaverð hækkaði um 2,8 prósent að raunvirði á milli desembermánaða 2023 og 2024, samanborið við 5,6 prósenta raunhækkun í nóvember

Vísitala íbúðaverðs mældist 108,8 stig í desember og lækkaði um 0,64 prósent á milli mánaða. Síðast lækkaði vísitalan á milli mánaða í september síðastliðnum. Á síðustu 12 mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 7,72 prósent á meðan vísitala neysluverðs hækkaði um 4,8 prósent á sama tímabili.

Taflan hér að neðan sýnir vísitöluna, ásamt mánaðarhækkun hennar og 12 mánaða hækkun, auk fjögurra undirvísitalna fjölbýlis og sérbýlis á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu.

Vísi­tala íbúða­verðs fyr­ir des­em­ber 2024

VísitalaGildiBreyting á milli mánaða12 mánaða breyting
Íbúðaverð108,8-0,64%7,72%
Sérbýli á hbs.107,8-2,18%9,33%
Sérbýli á landsbyggð112,10,36%4,96%
Fjölbýli á hbs.107-0,28%6,89%
Fjölbýli á landsbyggð115,11,59%11,53%

Raun­verðs­hækk­un ní­unda mán­uð­inn í röð

Íbúðaverð hækkaði um 2,8 prósent að raunvirði á ársgrundvelli í desember, níunda mánuðinn í röð. Þó hefur hægst á raunverðshækkun vísitölu íbúðaverðs, en til samanburðar nam raunverðshækkunin á ársgrundvelli 5,6 prósentum í nóvember og hefur hún verið yfir þremur prósentustigum frá júní 2024. Á myndinni hér að neðan má sjá raunverðsþróun vísitölu íbúðaverðs frá janúar 2021.

Lækk­un­in drif­in áfram af íbúð­um á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Mánaðarlækkun íbúðaverðs var mest á höfuðborgarsvæðinu, þar sem verð á sérbýli lækkaði um 2,18 prósent og verð á fjölbýli lækkaði um 0,28 prósent. Á sama tíma hækkuðu undirvísitölur bæði sérbýlis og fjölbýlis á landsbyggðinni á milli mánaða í desember. Flestir kaupsamningar í útreikningi vísitölunnar eru þó um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og vega þær því meira en íbúðir á landsbyggðinni.

Mæla­­borð fyr­­­ir vísi­­­töl­­­ur HMS

Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggð.

Einnig sýnir mælaborðið undirvísitölur íbúðaverðs og eldri vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir tímabilið 1994-2024 sem var birt á vef Fasteignaskrár, auk sameiginlegrar vísitölu, sem er byggð á eldri vísitölum íbúðaverðs fyrir tímabilið 1981-2024 og nýrri undirvísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og tekur gildið 100 í janúar 2024. Mælaborðið má finna á https://hms.is/gogn-og-maelabord/visitolur

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS