16. júní 2025
17. júní 2025
Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,45 prósent í maí 2025
- Vísitala íbúðaverðs mældist 110,9 stig í maí og lækkaði um 0,45 prósent á milli mánaða, eftir að hafa hækkað um 0,45 prósent í apríl
- Á síðustu tólf mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 5,72 prósent, á sama tíma og verðbólga mældist 3,8 prósent
- Undirvísitölur íbúðaverðs lækkuðu á höfuðborgarsvæðinu en hækkuðu utan höfuðborgarsvæðisins
Íbúðaverð lækkaði um 0,45 prósent á milli mánaða í maímánuði, samkvæmt nýjustu gildum úr vísitölu íbúðaverðs. Þetta er í fyrsta skiptið sem íbúðaverð lækkar á milli mánaða á þessu ári, en það gerðist síðast í desember árið 2024.
Vísitala íbúðaverðs mældist 110,9 stig í maí, og lækkaði hún úr 111,4 stigum í apríl. Vísitalan hækkaði um 5,72 prósent á milli maímánaða 2024 og 2025, en til samanburðar mældist verðbólgan 3,8 prósent á sama tíma. Íbúðaverð hækkaði því að raunvirði um 1,9 prósent á milli maímánaða 2024 og 2025.
Á mynd hér að neðan má sjá mánaðarbreytingu vísitölu íbúðaverðs á síðustu mánuðum.
Taflan hér að neðan sýnir vísitöluna, ásamt mánaðarhækkun hennar og 12 mánaða hækkun, auk fjögurra undirvísitalna fjölbýlis og sérbýlis á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu.
Vísitala íbúðaverðs fyrir maí 2025
Vísitala | Gildi | Breyting á milli mánaða | 12 mánaða breyting |
---|---|---|---|
Íbúðaverð | 110,9 | -0,45% | 5,72% |
Sérbýli á hbs. | 109,9 | -2,14% | 5,27% |
Sérbýli á landsbyggð | 114,7 | 1,33% | 8,11% |
Fjölbýli á hbs. | 108,8 | -0,27% | 4,11% |
Fjölbýli á landsbyggð | 117,8 | 1,2% | 11,45% |
Lækkanir á höfuðborgarsvæði en hækkanir á landsbyggðinni
Lækkun íbúðaverðs í maímánuði er drifin áfram af lækkun á verði íbúða á höfuðborgarsvæðinu en íbúðaverð hækkaði milli mánaða á landsbyggðinni. Undirvísitölur fjölbýlis og sérbýlis á landsbyggðinni hækkuðu um yfir 1 prósent á milli mánaða, á meðan fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,27 prósent á milli mánaða og sérbýli á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 2,14 prósent á milli mánaða.
Milli maímánaða 2024 og 2025 hækkaði íbúðaverð á landsbyggðinni um 9,06 prósent en samsvarandi hækkun nam 4,59 prósentum á höfuðborgarsvæðinu. Líkt og sést í töflunni hér að ofan hefur íbúðaverð fjölbýlis á landsbyggðinni hækkað mest frá maímánuði 2024, eða um 11,45 prósent. Fjölbýlisíbúðir á höfuðborgarsvæðinu hafa hins vegar hækkað um 4,11 prósent á sama tíma.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggð.
Einnig sýnir mælaborðið undirvísitölur íbúðaverðs og eldri vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir tímabilið 1994-2024 sem var birt á vef Fasteignaskrár, auk sameiginlegrar vísitölu, sem er byggð á eldri vísitölum íbúðaverðs fyrir tímabilið 1981-2024 og nýrri undirvísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og tekur gildið 100 í janúar 2024.