9. nóvember 2026
HMS úthlutar 26 hlutdeildarlánum í október
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Samþykktar voru 26 umsóknir um hlutdeildarlán að fjárhæð samtals um 367 milljónir króna
- Samþykktum umsóknum um hlutdeildarlán fjölgaði um rúm 60% miðað við október í fyrra
- Flest lán voru veitt vegna íbúðakaupa í Hafnarfirði
HMS hefur lokið úthlutun hlutdeildarlána í október. Alls voru 26 umsóknir samþykktar og nam heildarfjárhæð lánsvilyrða um 367 milljónum króna sem gerir meðalfjárhæð samþykktra lána um 14 milljónir króna.
Til samanburðar voru 16 umsóknir samþykktar í október í fyrra fyrir samtals um 182 milljónir króna. Samþykktum umsóknum fjölgaði því um rúm 60% milli ára og heildarfjárhæð lánsvilyrða rúmlega tvöfaldaðist.
Flest lán vegna íbúðakaupa í Hafnarfirði
Af 26 samþykktum umsóknum í október voru 21 vegna íbúðakaupa á höfuðborgarsvæðinu og fimm utan þess. Flestar voru vegna kaupa í Hafnarfirði, eða alls 12, og sjö vegna kaupa í Reykjavík.
Í 25 af 26 samþykktum umsóknum lá fyrir samþykkt kauptilboð.
Fjölda samþykktra umsókna og fjárhæð lánsvilyrða eftir svæðum má sjá í töflu hér að neðan.
| Landssvæði | Fjöldi umsókna | Fjárhæð (milljónir króna) |
|---|---|---|
| Höfuðborgarsvæðið | 21 | 306 |
| Utan höfuðborgarsvæðisins | 5 | 61 |
| Samtals | 26 | 367 |
Rúmlega fjórir milljarðar króna samþykktir á árinu
Á fyrstu tíu mánuðum ársins hafa alls 286 umsóknir um hlutdeildarlán verið samþykktar og nemur samanlögð fjárhæð þeirra um 4,2 milljörðum króna. Fjöldi samþykktra umsókna er því þegar orðinn meiri en á öllu síðasta ári þegar samþykktar voru 157 umsóknir.
Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum var mikil á fyrri hluta ársins og var jafnan umfram það fjármagn sem var til úthlutunar. Frá mars til júní þurfti því að velja af handahófi úr hópi umsókna sem uppfylltu öll skilyrði lánanna. Í júlí tókst hins vegar að vinna upp uppsafnaða eftirspurn og hefur ekki þurft að grípa til útdráttar síðan.
Opið fyrir umsóknir í nóvember
Hlutdeildarlán eru veitt til kaupa á nýjum íbúðum og eru ætluð fyrstu kaupendum og þeim sem ekki hafa átt fasteign síðustu fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Markmið lánanna er að aðstoða kaupendur við að komast inn á húsnæðismarkaðinn með því að brúa bilið við fasteignakaup.
Úthlutað er í hverjum mánuði og er nú opið fyrir umsóknir vegna úthlutunar í nóvember.
Nánari upplýsingar um hlutdeildarlán og umsóknarferlið má finna á Ísland.is.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




