25. mars 2025
13. mars 2025
Vísbendingar um aukin fasteignaumsvif á fyrstu mánuðum ársins
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Um 1.085 eignir voru teknar af sölu í febrúar og hefur þeim fjölgað hratt á síðustu mánuðum
- Hægt er að áætla fasteignaumsvif einn mánuð fram í tímann með því að telja íbúðir sem teknar eru úr sölu í hverjum mánuði
- Álíka margar íbúðir voru teknar úr sölu á fyrstu tveimur mánuðum ársins og í ársbyrjun 2021
Íbúðum sem teknar hafa verið af sölu hefur fjölgað hratt á síðustu mánuðum, samkvæmt upplýsingum sem HMS hefur unnið úr fasteignaauglýsingum. Fjölgun íbúða sem teknar hafa verið úr sölu bendir til þess að umsvif á fasteignamarkaði hafi aukist á síðustu tveimur mánuðum.
Í febrúar voru um 1.085 eignir teknar af sölu þar sem 70% þeirra eru staðsettar á höfuðborgarsvæðinu, 17% þeirra í nágrenni höfuðborgarsvæðis og 13% þeirra annars staðar á landinu. Hægt er að áætla umsvif á fasteignamarkaði út frá fjölda íbúða sem teknir eru af sölu á vefnum fasteignir.is í hverjum mánuði, þar sem sterk fylgni hefur verið á milli þeirra og fjölda útgefinna kaupsamninga mánuði seinna.
Líkt og sést hér á myndinni að neðan hefur íbúðum sem teknar hafa verið af söluskrá fjölgað á milli mánaða en í janúar voru um 950 eignir teknar af sölu og 650 eignir teknar af sölu í desember.
Á fyrstu tveimur mánuðum síðasta árs voru fleiri eignir teknar úr sölu, en þá stórjókst eftirspurn á fasteignamarkaði tímabundið vegna atburðanna í Grindavík. Fjöldi eigna sem tekin var úr sölu í janúar og febrúar var um helmingi fleiri í ár en á sama tímabili árin 2022 og 2023. Álíka margar fasteignir voru þó teknar úr sölu í janúar og febrúar 2021, þegar vextir á húsnæðislánum voru í sögulegu lágmarki.
Af þeim 1.085 íbúðum sem teknar voru af sölu á öllu landinu í febrúar voru 230 nýbyggingar, en til samanburðar voru um 200 nýbyggingar teknar af sölu í janúar. Hlutfall nýbygginga sem teknar voru af sölu var hæst í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, eða um 39% , en til samanburðar var hlutfall slíkra eigna sem teknar voru af sölu 20% í janúar. Hlutfallið er sambærilegt á milli mánaða á höfuðborgarsvæðinu, eða í kringum 21% í janúar og febrúar.
Á síðustu tveimur mánuðum hafa um 300 nýbyggingar verið teknar af sölu á höfuðborgarsvæðinu þegar 150 slíkar eignir voru teknar af sölu í febrúar og 153 í janúar. Fjöldi þeirra hefur tæplega tvöfaldast frá því í nóvember og desember í fyrra, en þá voru um 86 eignir teknar af sölu í nóvember og 80 í desember.
Hlutfall nýbygginga af framboði hefur því lækkað á síðustu tveimur mánuðum frá hágildi hlutfallsins um síðustu áramót. Um áramót voru um 47% allar íbúða til sölu á höfuðborgarsvæðinu nýjar íbúðir og hefur hlutfall þeirra ekki mælst svona hátt frá því að gagnasöfnun hófst á fasteignaauglýsingum í byrjun árs 2018.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS