30. apríl 2025
27. apríl 2023
Viðburður: Grænt stökk í mannvirkjagerð
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Í dag fer fram fundurinn Grænt stökk í mannvirkjagerð, fundurinn verður haldinn á Grand Hótel milli kl.13-16. Á fundinum verður kynnt vegferð norrænna og íslenskra stjórnvalda og þau nýju tækifæri og framfarir sem sem felast í grænum umbreytingum í framkvæmd mannvirkjamála.
Anders Lendager verður lykilfyrirlesari, en hann er danskur arkitekt sem hefur tekið málefnið í sínar hendur og sýnt fram á að það er hægt að taka grænt stökk í mannvirkjagerð. Hann mun halda leiðandi erindi þar sem hann kynnir hugmyndafræðina, nýtt sjónarhorn og ný atvinnutækifæri sem felast í breytingunum. Þetta er tímamótaviðburður sem enginn í bransanum má láta framhjá sér fara. Leiðandi aðilar kynna þær umbreytingar sem eru í farvatninu.
Hér að neðan má finna dagskrá fundarins. Fullt er á fundinn en hægt er að fylgjast með í streymi, hlekkinn má nálgast hér að neðan.
Hér er hægt að nálgast hlekk á streymið
Dagskrá
13:00 Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
Ávarp
13:10 Anders Lendager, arkitekt, stofnandi og framkvæmdastjóri Lendager Group
The invention of the (un)natural system
13:50 Helle Redder Momsen, verkefnastjóri Nordic Sustanable Construction
Nordic Sustainable Construction: Norræna vegferðin í vistvænni mannvirkjagerð
14:05 Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Mannvirkja og sjálfbærni hjá HMS
Byggjum grænni framtíð: Íslenska vegferðin í vistvænni mannvirkjagerð
14:20 Áróra Árnadóttir, framkvæmdastjóri Grænni Byggðar
Hvernig byggir Grænni byggð grænni framtíð?
14:35 Hlé
14:50 Jukka Heinonen, prófessor í Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands
Borgarsamfélagið og þétting byggðar. Hringrásarhagkerfið.
15:05 Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt og meðeigandi Lendager á Íslandi
Arkitektúr og mannvirkjagerð með sjálfbærni og hringrásarhagkerfið að leiðarljósi.
15:20 Katarzyna Jagodzińska, verkefnastjóri hjá Grænni byggð
Hringrás í mannvirkjagerð: Getum við haldið áfram að byggja á sama hátt og áður?
15:35 Sigríður Ósk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri umhverfis- og gæðamála hjá Hornsteini
Loftslagsmarkmið, vistvæn steypa og byggingariðnaður.
15:50 Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, verkefnastjóri Asks – mannvirkjarannsóknasjóðs
Askur styður við stökkið.
16:00-16:20 Anders Lendager arkitekt og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
Samtal um grænt stökk í mannvirkjagerð, vegferðina, tækifærin, áskoranirnar og nýja nálgun.
Fundarstjóri: Björg Ásta Þórðardóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS