21. september 2026
22. september 2026
Verulega hefur hægt á uppbyggingu íbúða og horfur til næstu ára hafa versnað
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Íbúðum í byggingu hefur fækkað á sama tíma og nýjum óseldum íbúðum hefur fjölgað
- Nýjar framkvæmdir á milli íbúðatalninga HMS hafa aldrei verið færri og ekki hafa færri íbúðir verið á fyrri framvindustigum
- Horfur um íbúðauppbyggingu árin 2027 og 2028 hafa versnað frá því í mars
Alls voru 6.216 íbúðir í byggingu á landinu öllu samkvæmt septembertalningu HMS og hafði þeim fækkað um 11% á síðustu sex mánuðum. Á sama tíma hefur nýjum óseldum íbúðum haldið áfram að fjölga hratt og eru þær nú um 85% fleiri en fyrir ári síðan.
Þetta er meðal niðurstaðna septembertalningar HMS á íbúðum í byggingu, sem kynntar voru á opnum fundi kl. 12 í dag. Hægt er að lesa niðurstöður talningarinnar með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Niðurstöður septembertalningar 2026
Íbúðum í byggingu fækkar á ný
Alls eru 6.216 íbúðir í byggingu á landinu öllu en þar að auki eru 1.855 íbúðir fullbúnar en hafa ekki verið teknar í notkun. Í mars voru 6.988 íbúðir byggingu og hefur þeim því fækkað um 772, eða 11%, á sex mánuðum. Frá september 2025 hefur þeim fækkað um 348, eða rúmlega 5%.
Íbúðum með óbreytta framvindu fjölgar verulega á milli talninga
Alls voru 2.374 íbúðir á framvindustigum 1 til 6 á sama framvindustigi í septembertalningu og þær voru í marstalningu. Íbúðum með óbreytta framvindu hefur því fjölgað um 65% á síðustu sex mánuðum og rúmlega þrefaldast á síðastliðnu ári. Tæplega þrjár af hverjum fjórum íbúðum með óbreytta framvindu eru á framvindustigum 3 og 4, líkt og sjá má á mynd hér að neðan.
Óbreytt framvinda á milli talninga þarf ekki að þýða að framkvæmdir hafi legið niðri á tímabilinu. Mikil fjölgun íbúða með óbreytta framvindu er þó vísbending um að hægt hafi á framgangi hluta þeirra verkefna sem þegar eru í byggingu.
Nýjum framkvæmdum fækkar um rúmlega helming á milli talninga og hafa aldrei verið færri
Frá marstalningu 2026 hófust framkvæmdir við byggingu 772 íbúða á landinu öllu og hafa þær aldrei verið færri frá upphafi íbúðatalninga HMS. Nýjum framkvæmdum hefur fækkað um 56% á milli talninga og um 48% frá septembertalningu 2025.
Þegar horft er til lengra tímabils er samdrátturinn þó ekki jafn mikill og síðasta talning ein og sér gefur til kynna. Á síðustu tólf mánuðum hafa framkvæmdir hafist við 2.526 íbúðir, samanborið við 3.084 íbúðir á tólf mánaða tímabilinu þar á undan. Nýjum framkvæmdum fækkaði þannig um 558 íbúðir, eða 18%, á milli ára. Nýjar framkvæmdir eru þó enn um 11% fleiri en árið 2024 og um 5% fleiri en árið 2023.
Búist er við um 2.500 nýjum fullbúnum íbúðum árlega á tímabilinu 2026-2028
Samkvæmt uppfærðri spá HMS á fjölda fullbúinna íbúða gætu að meðaltali um 2.500 íbúðir orðið fullbúnar á hverju ári á tímabilinu 2026-2028. Spáin gerir ráð fyrir að nýjar fullbúnar íbúðir verði um 2.600 árið 2026, um 2.300 árið 2027 og um 2.700 árið 2028. Þó er mikil óvissa um framvindu íbúða á spátímabilinu, sérstaklega fyrir árið 2028.
HMS gerir nú ráð fyrir að færri íbúðir verði fullbúnar árin 2027 og 2028 heldur en í síðustu íbúðaspá sem framkvæmd var í kjölfar íbúðatalningar í marsmánuði 2026. Í nýju spánni gerir HMS ráð fyrir að um 2.100-2.600 nýjar íbúðir verði fullbúnar á árinu 2027, samanborið við 2.800-3.700 íbúðir í eldri spá. Fyrir árið 2028 gerir HMS nú ráð fyrir að um 1.900-2.800 nýjar íbúðir verði fullbúnar, samanborið við 2.700-3.700 íbúðir samkvæmt eldri spá.
Helstu ástæður þess að áætluðum verklokum nýrra fullbúinna íbúða fækkar á milli íbúðaspáa er sú að nýjum íbúðaverkefnum hefur fækkað markvert auk þess sem gert er ráð fyrir hægari framvindu íbúðauppbyggingar í ljósi fjölgunar íbúða með óbreytta framvindu á milli talninga.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS



