3. nóvember 2025
3. nóvember 2025
Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar og byggingarmála á Vestfjörðum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Mánudaginn 10. nóvember verður haldinn opinn fundur um þróun og framtíðahorfur íbúðarmarkaðar á Vestfjörðum. Fundurinn verður haldinn í Edinborgarhúsinu, Aðalstræti 7 á Ísafirði, kl. 12 og er opinn öllum. Að fundinum standa HMS, Tryggð byggð og Vestfjarðarstofa.
Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins.
Dagskrá
- Staðan í Ísafjarðarbæ
Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis og eignasviðs Ísafjarðarbæjar - Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur
Jón Örn Gunnarsson, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS - Byggingarleyfi á Íslandi – allt á einum stað
Dagný Geirdal, verkefnastjóri Mannvirkjaskrár hjá HMS
Húsið opnar kl. 11:45 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.
Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




