7. júlí 2026
7. júlí 2026
Stofnframlög á öðrum ársfjórðungi 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Alls hafa borist 20 umsóknir um stofnframlög það sem af er ári
- Frumvarp um hækkun stofnframlaga ríkisins úr 18% í allt að 23% var nýlega samþykkt á Alþingi
- Viðbótarframlag ríkis nær nú einnig til atvinnuhúsnæðis sem breytt er í íbúðarhúsnæði
Fyrri helmingur ársins hefur verið annasamur í almenna íbúðakerfinu. Fyrstu úthlutun stofnframlaga er lokið og umsóknir sem bárust í annarri úthlutun eru nú til yfirferðar hjá HMS. Samhliða hefur Alþingi samþykkt breytingar á lögum um almennar íbúðir sem fela í sér aukin stofnframlög og auka þannig stuðning við uppbyggingu almennra íbúða.
Fyrsta úthlutun ársins 2026
Í fyrstu úthlutun ársins var samþykkt að veita stofnframlög til 14 verkefna til byggingar og kaupa á alls 299 íbúðum. Heildarstofnvirði verkefnanna nam um 16 milljörðum króna og stofnframlag ríkis var um 3 milljarðar króna. Alls eru 7 stofnframlagshafar að baki verkefnanna sem dreifast niður á 13 sveitarfélög um allt land. Flestar íbúðirnar, alls 154, eru staðsettar utan höfuðborgarsvæðisins.
Önnur úthlutun ársins 2026 í yfirferð
Umsóknarfrestur í aðra úthlutun ársins rann út 26. júní. Alls bárust sex umsóknir um stofnframlög vegna 42 íbúða og nemur umsótt fjárhæð stofnframlaga ríkisins um 615 milljónum króna.
Þrjár umsóknir lúta að byggingu samtals 29 íbúða og þrjár að kaupum á samtals 13 íbúðum. Af þeim 42 íbúðum sem sótt er um stofnframlög fyrir eru 32 staðsettar á Norður- og Austurlandi en 10 á höfuðborgarsvæðinu.
HMS vinnur nú að yfirferð umsóknanna og metur meðal annars hvort verkefnin uppfylli skilyrði laga um almennar íbúðir, séu hagkvæm og svari þeirri húsnæðisþörf sem er til staðar á viðkomandi svæðum.
Alþingi samþykkir hækkun stofnframlags
Alþingi samþykkti í júní breytingar á lögum um almennar íbúðir sem eru hluti af aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum. Með breytingunum hækkar stofnframlag ríkisins úr 18% í allt að 23%. Viðbótarframlag til íbúðarhúsnæðis á vegum sveitarfélaga og húsnæðis fyrir námsmenn og öryrkja hækkar jafnframt úr 4% í 5%. Þá nær heimild til viðbótarframlags nú einnig til atvinnuhúsnæðis sem breytt er í íbúðarhúsnæði.
Stofnframlög styðja við uppbyggingu hagkvæmra leiguíbúða
Stofnframlög eru fjárframlög frá ríki og sveitarfélögum sem stuðla að uppbyggingu hagkvæmra leiguíbúða fyrir tekju- og eignalægri heimili og aðra hópa sem eiga erfitt með að tryggja sér húsnæði á almennum markaði. Með stofnframlögum lækkar stofnkostnaður verkefna sem skilar sér í lægri leigu og auknu framboði á húsnæði á viðráðanlegum kjörum.
Nýsamþykktar breytingar á lögum um almennar íbúðir fela í sér aukinn stuðning við slíka uppbyggingu og er þeim ætlað að bæta rekstrargrundvöll verkefna og stuðla að frekari fjölgun almennra íbúða um land allt.
Stefnt er að því að opna fyrir þriðju úthlutun stofnframlaga í október 2026.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




