18. desember 2020

Skýrsla HMS um brunann á Bræðraborgarstíg

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Skýrsla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) um brunann á Bræðraborgarstíg, sem kostaði þrjár manneskjur lífið, var gerð opinber í dag. Rannsóknarniðurstöður rannsakenda á eldvarnarsviði HMS höfðu áður verið gerðar aðgengilegar lögreglu, jafnóðum og þær lágu fyrir. Þá var skýrslan í drögum kynnt fyrir bæði Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og byggingafulltrúa Reykjavíkurborgar og þessum aðilum gefið færi á að koma á framfæri athugasemdum sínum.Rannsókn brunans reyndist flóknari vegna þess hversu hratt eldurinn breiddist út en rannsakendur telja líkur á að kveikt hafi verið í á tveimur stöðum í húsinu. Rannsakendur telja að, óháð því hvort um íkveikju hafi verið að ræða, þá hafi fleiri samverkandi þættir haft áhrif á að eldsvoðinn varð jafn mannskæður og raun bar vitni. Þessi niðurstaða skýrslunnar vekur upp spurningar um til hvaða aðgerða þurfi að grípa til að hindra að slíkt endurtaki sig. Í skýrslunni kemur einnig fram að vettvangur hafi ekki verið fullmannaður af hálfu slökkviliðsins fyrr en seinni dælubíllinn kom á staðinn 11 mín og 50 sek eftir að útkallið barst, þar sem hann var að sinna öðru alvarlegu útkalli. Það er umfram það 10 mínútna viðmið sem kveðið er á um fyrir umrætt útkallssvæði í reglugerð. Skýrsluhöfundar komast þó að þeirri niðurstöðu að fullmannaður vettvangur strax 7 mínútum eftir útkall, þegar fyrsti dælubílinn var kominn á staðinn, hefði ekki breytt því hvernig fór.

Ráðherra kallar eftir tillögum

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur lýst því yfir að mikilvægt sé að víðtækur lærdómur verði dreginn af brunanum og undir þetta hafa meðal annars borgarstjóri og slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins tekið. Ásmundur Einar hefur, samhliða útgáfu skýrslunnar, falið HMS að skila til ráðuneytisins tillögum til úrbóta. Allmargir koma að þeim málaflokkum sem um ræðir og hefur HMS því sett á fót tímabundinn samráðsvettvang um brunavarnir í íbúðarhúsnæði sem mun móta, og skila til ráðherra, tillögum um úrbætur. Eiga þær að liggja fyrir strax í lok janúar næstkomandi.

Tilgangur skýrslunnar að draga fram sem sannasta mynd af atburðarásinniRannsókn HMS á brunanum á Bræðraborgarstíg sneri að eldsvoðanum, byggingunni, aðkomu og aðgerðum slökkviliðs og hófst með því að sérfræðingar á eldvarnasviði stofnunarinnar skoðuðu brunarústirnar, fljótlega eftir að búið var að ráða niðurlögum eldsins. Til að fá sem sannasta niðurstöðu af atburðarrásinni voru gerð líkön af brunanum. Þá voru skoðaðar myndir af vettvangi, myndbönd og stuðst við frásagnir sjónarvotta. Niðurstaðan er í skýrslunni talin gefa góða mynd af raunverulegri atburðarrás. Tilgangurinn með útgáfu sérstakrar skýrslu með helstu niðurstöðum rannsóknarinnar er að draga fram alla þá þætti sem höfðu áhrif á brunann annarsvegar og aðkomu viðbragðsaðila hinsvegar svo hægt sé að lágmarka hættu á sambærilegum skaða af völdum eldsvoða í framtíðinni.

Vinnuhópur, sem skoðað hefur umfang óleyfisbúsetu, skilar af sér á næstunni

Nokkrum dögum eftir brunann í júní síðastliðnum funduðu forstjóri, aðstoðarforstjóri og sérfræðingar HMS með slökkviliðsstjóra höfuðborgarsvæðisins og byggingarfulltrúanum í Reykjavík. Þar var farið yfir stöðu brunaeftirlits og brunavarna og rætt um aðstæður fólks sem býr í atvinnuhúsnæði og öðru ósamþykktu og óviðunandi húsnæði. Meðal þess sem kom til umræðu á fundinum var hvort koma mætti í veg fyrir að fjöldi fólks sé skráð til heimilis á einum og sama staðnum en alls voru 73 einstaklingar með skráð lögheimili að Bræðraborgarstíg 1. Í framhaldinu var settur á laggirnar óformlegur vinnuhópur á vegum HMS sem haft hefur til skoðunar umfang óleyfisbúsetu og fjöldaskráningar í íbúðir. Í honum sitja fulltrúar frá HMS, slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, Þjóðskrá og ASÍ. Hópurinn mun skila niðurstöðum sínum innan skamms.

Bruninn sérstaklega skæður vegna samverkandi þátta

Í skýrslu HMS um brunann á Bræðraborgarstíg kemur fram að yfirgnæfandi líkur séu á að kveikt hafi verið í húsinu á tveimur stöðum. Rannsókn HMS miðaði m.a. að því að skilja eldsvoðann og hvernig hann breiddist út. Hraði brunans var mikill sem gaf til kynna að upphafið hafi verið kröftugt. En við þessar aðstæður sem þarna voru getur verið erfitt að sjá og meta atburðarásina með hefðbundinni rannsókn á rústunum. Sérfræðingar HMS bjuggu til straumfræðileg brunalíkön þar sem hægt var að skoða mismunandi sviðsmyndir en þessi aðferð gerði þeim kleift að ákvarða líklegustu atburðarásina með nokkurri vissu. Hún er sú að um íkveikju hafi verið að ræða og að eldurinn byrjaði fyrst í herbergi á 2. hæð en um mínutu síðar hafi kviknað eldur á stigapalli sömu hæðar.Það er jafnframt niðurstaða HMS að óháð því hvort kveikt hafi verið í af mannavöldum eða ekki, þá höfðu fleiri samverkandi þættir áhrif á að eldsvoðinn varð jafn mannskæður og raun bar vitni. Um var að ræða yfir hundrað ára gamalt forskalað timburhús sem ekki var vel úr garði gert með tilliti til brunavarna í upphafi. Upphaflegar teikningar liggja ekki fyrir, en nýjustu samþykktu teikningarnar eru frá árinu 2000. Þær brunavarnir sem þær teikningar gerðu ráð fyrir voru ekki til staðar þegar bruninn varð. Herbergjaskipan var líka önnur. Brunahólfun að stigahúsi var ekki til staðar né þau björgunarop sem voru á samþykktum teikningum. Eins hefur inngangi á 2. hæð hússins á einhverjum tímapunkti verið lokað með þeim afleiðingum að í stað tveggja flóttaleiða úr íbúðinni var bara ein flóttaleið. Skýrsluhöfundar harma að lokaúttekt sem fram fór á árinu 2000 hafi einungis tekið til 1. hæðar hússins þar sem dagvistunarheimili var rekið á þeim tíma en efri hæðir hússins voru ekki skoðaðar. Var því ekki hægt að fullyrða hvort efri hæðir hússins hafi á einhverjum tíma verið til samræmis við samþykktar teikningar. Eigandi hússins á hverjum tíma bar ábyrgð á ástandi hússins, var skylt að sækja um tilskilin leyfi vegna breytinga á húsnæðinu og eins bar honum að tryggja viðunandi brunavarnir. Í skýrslunni kemur fram að notkun hússins var önnur en teikningar gerðu ráð fyrir og forsendur allt aðrar gagnvart brunaöryggi. Húsið var í raun notað til útleigu á herbergjum en ekki sem tvær íbúðir. Breytt notkun kallaði á auknar brunavarnir og eldvarnareftirlit.Að mati HMS gekk slökkvistarfið vel eftir að vettvangurinn var fullmannaður. Þær hörmulegu afleiðingar eldsvoðans, að þrír einstaklingar létust, dæmist á húsið, mögulega íkveikju og skipulag og ástand hússins. Bræðraborgarstígur fellur undir svokallað útkallssvæði 1, sem þýðir að miðað er við að slökkvistarf sé hafið á vettvangi innan 10 mínútna frá boðun slökkviliðs. Fyrsti dælubíll kom á vettvang eftir 6 mínútur og 10 sekúndur en vegna mikilla anna í öðrum útköllum kom sá síðari ekki fyrr en eftir 11 mínútur og 50 sekúndur. Þá taldist vettvangurinn fullmannaður. Í skýrslunni segir að fullmannaður vettvangur 7 mínútum eftir að símtalið barst Neyðarlínu hefði ekki breytt því hvernig fór.

Skýrsluna má lesa í heild sinni hér

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS