23. nóvember 2026

Heildarendurskoðun skapi betri skilyrði fyrir uppbyggingu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Félags- og húsnæðismálaráðherra fjallaði um heildarendurskoðun skipulagslaga í ávarpi sínu á skipulagsdaginn
  • Endurskoðuðum skipulagslögum er ætlað að skapa betri skilyrði fyrir uppbyggingu, án þess að slaka á kröfum um öryggi og gæði  
  • Framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga sagði sambandið styðja einfalt og skilvirkt skipulagskerfi og að halda þurfi kröfum á sveitarfélög í hófi

 

Betri skilyrði fyrir uppbyggingu án þess að slakað sé á kröfum 

Í ávarpi sínu á Skipulagsdeginum, kynnti Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra að undirbúningur við vinnu við heildarendurskoðun skipulagslaga væri hafinn í ráðuneytinu. Ragnar lagði áherslu á að endurskoðuð skipulagslög skapi betri skilyrði fyrir uppbyggingu án þess að slaka á kröfum um öryggi og gæði.  

Markmið breytinganna að skila betri niðurstöðum fyrir samfélagið 

Ráðherra sagði stóra markmiðið vera skipulagskerfi sem verndar mikilvæg verðmæti, tryggir gæði og geri okkur kleift að byggja upp með skynsamlegum hætti og bregðast við þegar það þarf að bregðast við t.d. við eldsumbrot. 

Fyrsta skref vinnunnar sé að skilja vel hvað virki vel, hvað mætti betur fara og hvaða breytingar séu líklegar til að skila raunverulegum ávinningi. Árangur endurskoðunar skipulagslaga velti á endanum ekki á því hversu mörgum ákvæðum verði breytt heldur hvort breytingarnar skili á endanum betri niðurstöðum fyrir samfélagið. Það snúist ekki bara um að byggja meira eða hraðar, heldur að byggja betur.  

Þá hvatti Ragnar þau sem starfa við skipulagsmál að koma með í þessa vinnu með opnum hug og að allir ættu að geta verið sammála um lokamarkmiðið.  

Skipulagsmál eru lýðheilsumál 

Ráðherra nefndi að tala eigi meira um skipulagsmál sem lýðheilsumál, því það hvernig við skipuleggjum byggðina hafi áhrif á daglegar venjur fólks. Skipulag móti meðal annars hversu auðvelt sé að komast í heimilis, vinnu og skóla á heilsusamlegan hátt og hvort börn geti farið örugg ferða sinna. Einnig þurfi að huga að nærumhverfi sem stuðli að heilbrigði, vellíðan og góðu mannlífi, þar sem græn svæði, útivist og hreyfing séu eðlilegur hluti daglegs lífs. Ákvarðanir sem teknar séu í dag, móti umhverfi næstu kynslóða.  

 

Samfélagsleg markmið eru að aukast 

Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, sagði skipulag vera eitt mikilvægasta stjórntæki sveitarfélaga til að móta samfélög sín til framtíðar. Hann lagði áherslu á að sambandið styðji einfalt og skilvirkt skipulagskerfi en gæta þurfi að sjálfstæði sveitarfélaga, að auknum kröfum á sveitarfélög sé haldið í hófi og að skýra þurfi hvar mörk landsskipulagsstefnu og staðbundinnar ákvarðanatöku liggi.  

Stærstu verkefni samtímans virða ekki sveitarfélagamörk og samstarf því mikilvægt 

Fram kom í máli Arnars að mörg stærstu verkefni samtímans virði ekki sveitarfélagamörk; húsnæðismarkaðir, samgöngur og atvinnusvæði séu oft þvert á sveitarfélög. Sama gildir um veitur og aðra innviði, loftslagsaðlögun og náttúruvernd.  

Samstarf sveitarfélaga verði því sífellt mikilvægara og þar geti svæðisskipulag og önnur form samvinnu gegnt stærra hlutverki. 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS