10. september 2020

Opnaði vefinn Hlutdeildarlán.is

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra opnaði í dag formlega nýjan vef um hlutdeildarlán, www.hlutdeildarlan.is, en það er nýtt úrræði sem auðveldar tekju- og eignaminni einstaklingum að festa kaup á fasteign.

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra opnaði í dag formlega nýjan vef um hlutdeildarlán, www.hlutdeildarlan.is, en það er nýtt úrræði sem auðveldar tekju- og eignaminni einstaklingum að festa kaup á fasteign.

Á vefnum er að finna allar helstu upplýsingar um hlutdeildarlánin en opnað verður fyrir umsóknir um þau þann 1. nóvember næstkomandi. Það er Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) sem mun sjá um að meta umsóknir og veita lánin.

„Hlutdeildarlánin eru róttæk aðgerð þar sem við erum að grípa inn í og rétta hlut tekjulágra einstaklinga á húsnæðismarkaðnum og jafna aðgengi fólks að honum, án þess að það þurfi að stóla á mömmu og pabba eða ömmu og afa til þess að eiga möguleika á að eignast fasteign. Það er mikið gleðiefni að þessi glæsilegi vefur sé nú kominn í loftið og hér finnur fólk allar helstu upplýsingar um ferlið,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra við opnun vefsins í morgun.

Lög um þessa nýju tegund af lánum voru samþykkt á Alþingi þann 3. september síðastliðinn en þau eru liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til stuðnings lífskjarasamningnum sem undirritaður var í fyrra.

Lánunum er ætlað að hjálpa fyrstu kaupendum undir ákveðnum tekjumörkum að brúa bilið við fasteignakaup. Lánað er 20% hlutdeildarlán á móti 5% eigin fé lántaka og 75% láni frá lánastofnun. Lágtekjuhópar geta fengið allt að 30% hlutdeildarlán.

Engir vextir eða afborganir eru af hlutdeildarláni en lántaki endurgreiðir lánið þegar hann selur eignina eða við lok lánstíma. Hlutdeildarlánið er veitt til 10 ára en heimilt er að framlengja lánstímann um fimm ár í senn, mest til 25 ára alls. Hlutdeildarlánið fylgir verðbreytingu eignarinnar og hækkar því eða lækkar í samræmi við það og miðast endurgreiðslufjárhæðin við sama hlutfall af verðmæti fasteignar og hlutdeildarlánið nam.

Endurgreiðslan hækkar ef verðmæti fasteignarinnar eykst

Stilla má upp dæmi þar sem kaupverð fasteignar er til dæmis 40 milljónir og hlutdeildarlánið hljóðar upp á 20% af kaupvirðinu eða sem samsvarar 8 milljónum króna. Tíu árum síðar er eignin seld fyrir 50 milljónir króna. Þá eru tuttugu prósentin endurgreidd, nema hlutfallið reiknast nú af nýja fasteignaverðinu og nemur endurgreiðslan því 10 milljónum kr. Þannig nýtur ríkið sem lánveitandi einnig góðs af hækkun fasteignaverðs, ólíkt öðrum lánveitendum á húsnæðismarkaði.

Hlutdeildarlán verða veitt vegna kaupa á nýbyggingum en þeim er einnig ætlað að hvetja til byggingar hagkvæmra íbúða fyrir fyrstu kaupendur en talsverður skortur hefur verið á slíkum íbúðum undanfarin ár.

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS