10. september 2026
11. september 2026
Breytingar á ákvæðum um burðarþol og stöðugleika kynntar á opnum fundi HMS
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Framsetning á efni mjög líkt því sem finna má í Danmörku og Noregi
- Samræmi milli Eurocodes og byggingarreglugerðar aukið
- Second Generation Eurocodes með íslenskum þjóðarviðaukum væntanlegir í lok árs 2026
HMS hélt opinn kynningarfund í gær um fyrirhugaðar breytingar á byggingarreglugerð sem varða burðarþol og stöðugleika mannvirkja. Fundurinn var liður í áframhaldandi endurskoðun og einföldun byggingar-reglugerðarinnar og gaf hagaðilum tækifæri til að kynna sér helstu tillögur HMS og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Fundurinn var vel sóttur í streymi en það takmarkaði umræður í lokin.
Hluti 6 um burðarþol og stöðugleika tekur efnislega til 8. hluta gildandi byggingarreglugerðar, að ákvæðum um byggingarvörur undanskildum. Neðangreind atriði fengu umfjöllun á fundinum:
- Burðarþol og stöðugleika mannvirkja
- Undirstöður og jarðtæknilegar forsendur
- Öryggi á byggingartíma og í fullgerðu mannvirki
Drög að 6. hluta byggingarreglugerðarinnar um burðarþol og stöðugleika, ásamt greinargerð um breytingarnar, voru birt fyrir fundinn hér. Þá er jafnframt hægt að skila athugasemdum rafrænt hér.
Skráðu þig á póstlista
Þau sem hafa áhuga á að fylgjast áfram með framvindu verkefnisins geta skráð sig á póstlista HMS. Þeir sem skrá sig fá upplýsingar um:
- komandi kynningar- og samráðsfundi,
- birtingu nýrra draga að reglugerð og leiðbeiningum,
- annað efni sem tengist endurskoðun byggingarreglugerðar.
Skráning á póstlistann
Við hvetjum alla hagaðila til að skrá sig og fylgjast með verkefninu.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




