11. september 2026

HMS minnir á skráningarskyldu leigusala og heimild til beitingar stjórnvaldssekta

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Bréf verða send út til einstaklinga sem eru mögulega leigusalar
  • Hægt er að búa til leigusamning í Leiguskrá í gegnum island.is eða með því að senda pappírssamning á leiguskra@hms.is til skráningar
  • HMS er heimilt að beita stjórnvaldssektum á þá leigusala sem vanrækja skráningarskylduna frá og með 1. janúar næstkomandi.

Frá og með 1. janúar 2026 hefur öllum leigusölum verið skylt að skrá leigusamninga um íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði sem leigt er til íbúðar í Leiguskrá HMS. Skráningarskyldan er samkvæmt húsaleigulögum.

Í dag munu leigusalar sem voru með húsaleigusamning samkvæmt skattframtali 2026 fá bréf á island.is þar sem þeir eru hvattir til að skrá leigusamning í Leiguskrá.

Vakin er athygli á því að frá og með 1. janúar 2027 er HMS heimilt að leggja stjórnvaldssekt á þá leigusala sem vanrækja skráningarskyldu sína. Sekt getur numið frá 10.000 kr. til 1.000.000 kr., fyrir hvert brot sbr. 5. gr. a. húsaleigusala.

Markmið HMS er að fá betri sýn yfir íslenskan leigumarkað og er Leiguskrá ætlað að halda utan um alla leigusamninga á Íslandi.

Við hvetjum þá sem hafa einhverjar spurningar til að hafa samband við HMS á hms@hms.is eða í s. 440-6400.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS