1. júlí 2025
1. júlí 2025
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um hlutdeildarlán út árið 2025
HMS hefur opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán fyrir júlímánuð. Hægt er að sækja um til og með 14. júlí með því að smella á þennan hlekk.
Sem liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar um að festa hlutdeildarlán í sessi þá hafa verið tryggðar mánaðarlegar úthlutanir fram til áramóta.
Hlutdeildarlán eru veitt til kaupa á nýjum íbúðum og eru ætluð fyrstu kaupendum, sem og þeim sem ekki hafa átt fasteign síðustu fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Markmið lánanna er að aðstoða fyrstu kaupendur í að komast inn á húsnæðismarkaðinn með því að brúa bilið við fasteignakaup.
Sækja um hlutdeildarlán
333 milljónir til úthlutunar í júlí
Umsóknartímabilið stendur frá 1. júlí og til kl. 12:00 þann 14. júlí næstkomandi. Til úthlutunar að þessu sinni eru 333 milljónir króna. Dugi fjármagnið ekki sem nú er til úthlutunar verður dregið af handahófi úr umsóknum þeirra umsækjanda sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána í samræmi við forgangsreglur.
Í forgangi eru umsóknir þar sem staðfest kauptilboð liggur fyrir, auk þess sem miða skal við að á hverju ári verði að minnsta kosti 20% veittra hlutdeildarlána veitt til kaupa á íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins. Ekki verður hægt að gefa út lánsvilyrði fyrr en allar umsóknir hafa verið yfirfarnar.