6. febrúar 2025
6. febrúar 2025
Opið fyrir umsóknir um stofnframlög
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stofnframlög í fyrstu úthlutun fyrir árið 2025. Stofnframlögin eru veitt til samfélagssinnaðra leigusala til að byggja eða kaupa almennar leiguíbúðir fyrir tekju- og eignaminni heimili.
Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar næstkomandi
Umsókn um stofnframlag
Stofnframlög hafa verið veitt til uppbyggingar á alls 4.015 íbúðum
Frá árinu 2016 þegar lög um almennar íbúðir tóku gildi hafa stjórnvöld úthlutað stofnframlögum upp á rúmlega 32 milljarða til uppbyggingar á 4.015 leiguíbúðum víðs vegar um landið. Heildarfjárfesting í uppbyggingunni nemur um 158 milljörðum króna.
Fjölgun íbúða með stofnframlögum eftir landshlutum
Stofnframlög eru stuðningur í formi eiginfjár sem veitt eru annars vegar fyrir hönd ríkisins í gegnum HMS og hins vegar frá viðkomandi sveitarfélagi þar sem íbúðirnar koma til með að vera staðsettar í.
Markmiðið með stofnframlögum er að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum með viðráðanlegan húsnæðiskostnað og bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni heimila. Húsnæðiskostnaður á að vera í samræmi við greiðslugetu og að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna.
Það eru ýmsar kröfur gerðar til almennra íbúða, sem eru byggðar eða keyptar með stofnframlögum, þær þurfa að uppfylla skilyrði um hagkvæmni t.a.m. stærðarmörk m.t.t. fjölda svefnherbergja. Þessi umgjörð er til þess fallin að lækka leiguverð og skapa aukið húsnæðisöryggi tekju-og eignaminni heimila.
Fyrirspurnir beinast á stofnframlag@hms.is
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS