30. maí 2025
19. janúar 2024
Ný vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu
HMS kynnti í gær nýja vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu. Vísitalan er byggð á gögnum úr nýrri leiguskrá í húsnæðisgrunni HMS.
Fyrsti útreikningur vísitölunnar miðast við maí 2023 og er gildi hennar þá 100. Í desember 2023 reiknast gildi vísitölunnar 105,6 stig og lækkar um 1,9% milli mánaða, síðastliðna 3 mánuði hefur vísitalan hækkað um 0,3% og 2,8% síðastliðna 6 mánuði. Frá maí er hækkun vísitölunnar 9,8% á ársgrundvelli.
Forsendur
Byggt er á leigusamningum um hefðbundnar íbúðir sem eru í eigu einstaklinga og fyrirtækja sem rekin eru í hagnaðarskyni. Reiknað er meðalfermetraverð í 6 flokkum eftir herbergjafjölda og niðurstöður vegnar saman með veltu síðustu 12 mánaða. Stuðst er við leigusamninga síðastliðna tvo mánuði, þannig byggir vísitalan í desember t.d. á leigusamningum í nóvember og desember.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. HMS áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.