29. nóvember 2024

Ný mannfjöldaspá eykur vænta íbúðaþörf

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Uppfærð mannfjöldaspá Hagstofu gerir ráð fyrir meiri mannfjölgun og hraðari öldrun þjóðar en fyrri spár
  • Byggja þarf fleiri íbúðir en áður var talið vegna mannfjölgunar og breyttrar fjölskyldusamsetningar
  • HMS telur nú að þörf sé á allt að 4.500 til 5.000 nýjum íbúðum á ári hverju til að halda í við þörf

HMS hefur endurskoðað mat sitt á íbúðaþörf í ljósi nýrrar mannfjöldaspár frá Hagstofu Íslands sem kom út fyrr í vikunni. Samkvæmt uppfærðri spá telur HMS að byggja þurfi allt að 4.500 til 5.000 íbúðir á ári fram til ársins 2050 til þess að sinna íbúðaþörf, en fyrra mat benti til þess að árleg íbúðaþörf væri nær 4.000 íbúðum.

Fleiri íbúð­ir vegna mann­fjölg­un­ar og öldr­un þjóð­ar

Í lok október síðastliðinn hélt HMS fund um íbúðaþörf en á þeim fundi gaf stofnunin út mat sitt á íbúðaþörf til ársins 2050. Matið byggði á væntri mannfjölgun og heimilisstærð út frá aldurssamsetningu þjóðarinnar samkvæmt þágildandi mannfjöldaspá Hagstofu.

HMS áætlaði að þörf væri á um 4.000 nýjum íbúðum á ári hverju, að því gefnu að mannfjölgun væri í samræmi við mannfjöldaspá og að heimilisstærð myndi minnka í samræmi við öldrun þjóðar líkt og hún hefur gert á hinum Norðurlöndunum.

Með­al­stærð heim­ila minnk­ar hrað­ar en áður

Uppfærð mannfjöldaspá sýnir fram á hraðari mannfjölgun en áður sem mun leiða til enn frekari eftirspurn eftir húsnæði á næstu áratugum. Áður var talið að fjöldi Íslendinga yfir sextugu muni fara fram úr fjölda þeirra undir tvítugu árið 2049 en samkvæmt nýrri mannfjöldaspá mun sú breyting eiga sér stað 8 árum fyrr, eða árið 2041. Meðalstærð heimila mun minnka hraðar en gert var ráð fyrir með færri börnum og aukinni lífslengd.

Uppfærð spá HMS á heimilisstærð til ársins 2050 áætlar að íbúum í hverri íbúð fækki nú úr 2,4 niður í 1,9 til 2,1. Heimilisstærð yrði 2,1 ef aldursdreifing hér á landi verður í samræmi við nýju mannfjöldaspá Hagstofu og Ísland fylgir sömu þróun og hin Norðurlöndin. Heimilisstærð yrði hins vegar 1,9 ef Ísland myndi einnig vinna á móti þeirri íbúðaskuld sem hefur safnast upp á síðustu árum, en HMS telur að hún nemi á bilinu 10 til 15 þúsund íbúðum.

Erf­ið­ara verð­ur að halda í við þörf­ina til lengri tíma

Spár HMS um minnkandi heimilisstærð og ný mannfjöldaspá Hagstofu bendir til þess að þörf verði á allt að 4.500 til 5.000 nýjum íbúðum á ári til ársins 2050 til að mæta bæði fólksfjölgun og minnkandi heimilisstærð. Á myndinni hér að neðan má sjá mat á íbúðaþörf miðað við nýja og eldri mannfjöldaspá. Myndin sýnir einnig íbúðaþörf út frá húsnæðisáætlunum sveitarfélaga og rammasamning ríkisins um aukna uppbyggingu íbúða.

Þar sem meðalfjöldi íbúða hefur verið í kringum 3.000 síðustu ár og íbúðatalning HMS sýnir fram á að það verði umtalsverð fækkun á nýbyggingum árið 2026, er útlit fyrir það að uppbyggingin nái ekki að halda í við þörfina til lengri tíma.

Uppfærð spá um íbúðaþörf gerir stöðuna á húsnæðismarkaði enn verri hér á landi, en án viðeigandi uppbyggingar getur skapast verulegur framboðsskortur sem mun ekki aðeins auka þrýsting á fasteigna- og leigumarkað, heldur einnig hafa neikvæð áhrif á húsnæðisöryggi.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS