24. september 2024

Niðurstöður talningar HMS á íbúðum í byggingu í september 2024

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Alls voru 16,8 prósentum færri íbúðir í byggingu í september en á sama tíma í fyrra
  • Íbúðir í byggingu á fyrstu tveimur framvindustigum voru helmingi færri en í síðustu tveimur talningum HMS og framkvæmdir hefjast á of fáum íbúðum ef ekki á að verða frekari samdráttur á nýjum íbúðum
  • Færri íbúðir eru á sama framvindustigi á milli talninga, sem gefur vísbendingar um að byggingaraðilar leggi megináherslu á að ljúka yfirstandandi verkefnum

Framkvæmdir voru hafnar á 7.221 íbúð um allt land í september, samanborið við 7.937 íbúðir í mars síðastliðinn og 8.683 í september 2023. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í greiningu upp úr nýjustu íbúðatalningu HMS, en nálgast má hana með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Greining og stöðumat á íbúðum í byggingu september 2024

Greining og stöðumat á íbúðum í byggingu september 2024

Íbúðum í byggingu fjölgar frá síðustu talningu HMS í mars síðastliðnum í Hvalfjarðarsveit og Hveragerðisbæ, en í hvoru sveitarfélagi nemur fjölgunin 31 íbúð. Á höfuðborgarsvæðinu fækkar íbúðum í byggingu í öllum  sveitarfélögum nema í Seltjarnarnesbæ þar sem jafnmargar íbúðir eru í byggingu og í síðustu talningu HMS.

Á höfuðborgarsvæðinu hefur hægst á uppbyggingu og fækkar íbúðum í byggingu um 536 íbúðir sem er samdráttur um 9,7 prósent á milli talninga. Mest fækkar þeim í Hafnarfjarðarbæ eða um 185 íbúðir og næstmest í Garðabæ þar sem 144 færri íbúðir eru í byggingu miðað við síðustu talningu HMS. Í Reykjavíkurborg fækkar íbúðum í byggingu um 27 íbúðir á milli talninga. Sjá má fjölda íbúða í byggingu eftir landssvæðum á mynd hér að neðan.

Fjöldi íbúða í byggingu eftir landssvæðum

Við samanburð nýjustu talningar við fyrri talningar kemur í ljós að fjöldi íbúða á fyrri framvindustigum (fyrir fokheldi) hefur farið fækkandi í síðustu fimm talningum og hafa þær ekki verið færri síðan í september 2021.

Færri íbúðir eru í framkvæmdum sem standa í stað milli talninga og telja þær framkvæmdir nú 1.311 íbúðir samanborið við 1.880 íbúðir í marstalningunni fyrr á árinu og 3.929 íbúðir í september fyrir ári síðan. Sjá má fjölda íbúða sem standa í stað milli talninga eftir landshlutum á mynd hér að neðan.

Fjöldi íbúða á óbreyttu framvindustigi á milli talninga

Fækkun íbúða sem standa í stað á milli talninga samhliða auknum umsvifum í byggingarframkvæmdum á síðustu misserum gefur til kynna að byggingaaðilar leggi nú meiri áherslu á að klára verkefni sem þegar eru hafin í stað þess að hefja ný verkefni.

Hins vegar eru 454 íbúðir nú á sama stigi og þær voru á í talningu HMS frá septembermánuði í fyrra, en undir venjulegum hraða á framvindu byggingarframkvæmda hefðu þessar íbúðir átt að færast á milli framvindustiga á 12 mánaða tímabili. Því gætu byggingaraðilar þessara íbúða verið í vandræðum með að klára uppbyggingu eða haldið að sér höndum þar til markaðsaðstæður breytast.

Út frá nýjustu talningu gerir HMS ráð fyrir að 3.024 íbúðir verði fullbúnar í ár sem er í samræmi við spá HMS eftir marstalningu fyrr á þessu ári. Áætlað er að 2.897 íbúðir verði fullbúnar árið 2025 og 2.323 íbúðir árið 2026, líkt og sjá má á mynd hér að neðan. Þess má geta að framkvæmdir sem hefjast á næstu mánuðum gætu klárast árið 2026 miðað við tveggja ára framleiðslutíma íbúða og er því spáin fyrir árið 2026 ekki endanleg spá fyrir það ár.

HMS og Samtök iðnaðarins (SI) munu fara yfir helstu niðurstöður íbúðatalningarinnar á opnum fundi um stöðu íbúðauppbyggingar sem fer hefst kl. 12 á þriðjudaginn 24. september í Borgartúni 21. Fundinum er einnig streymt á hms.is/streymi.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS