11. júní 2026

Nær eingöngu fjölbýli í byggingu í Reykjavík

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • 6.036 íbúðir eru nú skráðar í byggingu samkvæmt mælaborði HMS
  • Þrjár af hverjum fjórum íbúðum eru í fjölbýli
  • Í Reykjavíkurborg eru 99 prósent íbúða í byggingu í fjölbýlum

Samkvæmt mælaborði íbúða í byggingu eru nú skráðar 6.036 íbúðir í byggingu víðs vegar um landið. Alls eru 705 byggingaráform skráð, sem vísa til íbúða sem hafa fengið útgefið byggingarleyfi en framkvæmdir eru enn óhafnar.

Mælaborð HMS um íbúðir í byggingu birtir samantekin gögn úr Mannvirkjaskrá HMS, meðal annars um íbúðir í byggingu, byggingaráform og fullbúnar íbúðir eftir tegund húsnæðis, stærðarflokkun og framvindu.

Fjöl­býli ráð­andi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Samsetning íbúða í byggingu er mjög ólík eftir landshlutum. Fjölbýli eru ráðandi á höfuðborgarsvæðinu og eru einnig í meirihluta þegar kemur að íbúðum í byggingu á Suðurnesjum og Norðurlandi eystra. Þar vegur uppbygging í Akureyrarbæ og Reykjanesbæ þungt. Í öðrum landshlutum er meirihluti íbúða í byggingu í sérbýlum.

Munurinn skýrist að hluta til af ólíku byggðamynstri milli svæða. Í fjölmennari sveitarfélögum, þar sem byggð er þéttari, er fjölbýlisuppbygging yfirleitt stærri hluti nýbygginga. Í minni og dreifðari sveitarfélögum er uppbygging hins vegar oftar í formi sérbýla.

Nær ein­göngu fjöl­býli í bygg­ingu í Reykja­vík­ur­borg

Innan höfuðborgarsvæðisins er fjölbýli ráðandi í flestum sveitarfélögum. Í Reykjavík eru 1.997 íbúðir í fjölbýli í byggingu og aðeins 21 íbúð í sérbýli, sem þýðir að 99 prósent íbúða í byggingu eru í fjölbýli.

Hlutfall fjölbýla er einnig hátt í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, eða á bilinu 80 til 90 prósent. Mosfellsbær sker sig hins vegar úr, en þar eru 61 prósent íbúða í byggingu í sérbýli. Þar líkist samsetning uppbyggingar því frekar því sem sést víða utan höfuðborgarsvæðisins.


Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS