18. júní 2026
Mánaðarskýrsla HMS júní 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Mánaðarskýrsla HMS fyrir júní 2026 er komin út, en hana má nálgast með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að fasteignamarkaðurinn sé enn í aðlögunarfasa með raunverðslækkunum og hægri sölu, en að hlutdeild fyrstu kaupenda hafi verið talsverð síðustu mánuði. Á leigumarkaði má einnig greina merki um minni eftirspurnarþrýsting með hægari verðhækkunum og færri nýjum leigusamningum en á sama tíma í fyrra.
Mánaðarskýrsla HMS
Myndir að baki mánaðarskýrslu
Helmingur nýrra íbúða á söluskrá hefur verið til sölu í meira en 260 daga
Fasteignamarkaðurinn er áfram í aðlögunarfasa með raunverðslækkunum og hægari sölu. Auglýsingatími íbúða hefur lengst töluvert undanfarið en tæplega fjórðungur allra íbúða sem auglýstar voru til sölu í byrjun júní hafði verið á söluskrá í meira en tólf mánuði samanborið við um 16% á sama tíma í fyrra. Helmingur óseldra nýrra íbúða hafa verið á sölu í meira en 260 daga samanborið við 183 daga í júní í fyrra.
Þó nokkrum fjölda kaupsamninga er þó þinglýst, þótt þeir séu að jafnaði færri en á sama tíma í fyrra. Hlutdeild fyrstu kaupenda hefur verið talsverð síðustu mánuði þrátt fyrir að fjármögnunarkostnaður fasteigna hafi verið hár um nokkurt skeið. Rýmkun lánþegaskilyrða fyrstu kaupenda og breytingar á reglum um hlutdeildarlán hafa þar áhrif.
Nýskráðum leigusamningum fækkar á milli ára
Á leigumarkaði má jafnframt greina merki um minni eftirspurnarþrýsting. Áfram hægir á hækkun leiguverðs sem hefur staðið í stað að raunvirði undanfarið ár. Þá hafa færri nýir leigusamningar tekið gildi í hverjum mánuði í ár samanborið við í fyrra þrátt fyrir að almenn skráningarskylda hafi tekið gildi um áramótin. Fleiri leigusamningar féllu jafnframt úr gildi í nýliðnum maí samanborið við í maí í fyrra, en leigusamningar falla að jafnaði úr gildi í stórum stíl við lok skólaárs á vorin.
Óverðtryggð lán áfram í meirihluta nýrra lána
Lánamarkaðurinn hefur einkennst af aukinni ásókn heimila í óverðtryggð íbúðalán hjá bönkunum undanfarið eftir að verðtryggð lán frá lífeyrissjóðunum höfðu verið allsráðandi í fyrra. Bankarnir hafa lítið nýtt sér undanþáguheimildir frá hámarki greiðslubyrðarhlutfalls, en hærra hámarksveðsetningahlutfall hefur nýst fyrstu kaupendum.
Útlit fyrir að færri íbúðir verði fullbúnar annað árið í röð
Byggingarmarkaðurinn hefur verið rólegri það sem af er ári samanborið við undanfarin ár en færri nýjar íbúðir hafa orðið fullbúnar á fyrstu fimm mánuðum þessa árs samanborið við síðustu tvö ár. Hagtölur benda einnig til þess að íbúðafjárfesting hafi dregist saman í ár, auk þess sem starfsfólki í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð hefur fækkað lítillega.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




