22. apríl 2026

Mánaðarskýrsla HMS apríl 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Mánaðarskýrsla HMS fyrir apríl 2026 er komin út, en hana má nálgast með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að á fasteignamarkaði er enn rólegt um að litast en níu af hverjum tíu fasteignasölum töldu virkni markaðarins litla miðað við árstíma. Á byggingarmarkaði var íbúðauppbygging umfram nýja íbúðaþörf í fyrra vegna lítillar fólksfjölgunar.

Mánaðarskýrsla HMS

Myndir að baki mánaðarskýrslu

Birgða­tími er lengst­ur í ná­grenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins

Á fasteignamarkaði er enn rólegt um að litast. Níu af hverjum tíu fasteignasölum töldu virkni markaðarins litla miðað við árstíma í byrjun apríl og algengast er að færri en fjórir skoði hverja eign í fyrstu viku sölutíma. Íbúðum til sölu heldur jafnframt áfram að fjölga en í byrjun apríl voru um 6.200 íbúðir til sölu á landinu öllu og hafði þeim þá fjölgað um tæplega 30% á einu ári.

Framboðið hefur aukist hlutfallslega mest í nágrenni höfuðborgarsvæðisins þar sem eru nú um 67% fleiri íbúðir til sölu en í apríl 2025. Birgðatíminn, þ.e. sá tími sem tæki að selja núverandi framboð miðað við söluhraða síðasta mánaðar, mælist nú um 9 mánuðir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins samanborið við um 6 mánuði á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á landsbyggðinni.

HMS er heim­ilt að sekta leigu­sala með óskráða leigu­samn­inga

Á leigumarkaði hefur almenn skráningarskylda leigusamninga verið í gildi frá áramótum. HMS hyggst nýta heimild til að sekta leigusala sem ekki sinna skráningarskyldu finnist skýr dæmi um vanrækslu. Skráningarskyldunni er ætlað að bæta yfirsýn yfir leigumarkaðinn en leiguskrá geymir mikilvægar upplýsingar um gilda leigusamninga. Upplýsingar úr leiguskrá leiða til að mynda í ljós að aðfluttir leigjendur greiða að jafnaði hærra leiguverð en innfæddir leigjendur fyrir smærri leiguíbúðir þegar leigt er af einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu.

Ný íbúða­lán til heim­ila á breyti­leg­um vöxt­um eru á hverf­andi hveli eft­ir vaxta­dóm­inn

Lánamarkaðurinn hefur tekið nokkrum breytingum frá því að vaxtadómarnir féllu síðasta haust vegna breytts lánaframboðs. Hlutdeild verðtryggðra lána á breytilegum vöxtum af nýjum íbúðalánum til heimila hefur skroppið verulega saman eftir vaxtadóminn en hlutdeild óverðtryggðra lána hefur aukist á móti. Í febrúar síðastliðnum tóku heimilin ný óverðtryggð lán fyrir hærri upphæð heldur en verðtryggð lán, umfram uppgreiðslur, í fyrsta skipti í þrjú ár.

Þétt­ing mæt­ir mestri and­stöðu með­al eldra fólks í út­hverf­um

Á byggingarmarkaði var íbúðauppbygging umfram nýja íbúðaþörf í fyrra vegna lítillar fólksfjölgunar. Enn er talsverður fjöldi íbúða í virkri uppbyggingu samkvæmt marstalningu HMS, en mikill meirihluti íbúða í byggingu á höfuðborgarsvæðinu í dag eru í stórum fjölbýlum með 17 eða fleiri íbúðum í stigagangi. Ný könnun HMS bendir hins vegar til þess að búsetuóskir um fjölbýli beinist ekki síður að fjölbýlishúsum með færri íbúðum. Könnunin sýndi jafnframt að viðhorf til skipulagsmála eru misjöfn eftir aldri og búsetu. Þétting byggðar mætir mestri andstöðu meðal þeirra sem eldri eru og þeirra sem búsettir eru í úthverfum Reykjavíkur og öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS