18. janúar 2024

Mánaðarskýrsla hagdeildar HMS fyrir janúar 2024

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Raunverð íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um 3% síðastliðna tólf mánuði. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,5% á milli mánaða í desember og síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 4,5%.
  • Á síðasta ári urðu 3.079 nýbyggðar íbúðir fullbúnar. Til viðbótar hafði íbúðum fjölgað um 378 og fjölgaði því fullbúnum íbúðum um 3.457 á árinu.
  • Sjá má merki um að verulega sé farið að ganga á stofn nýrra íbúða í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Flestar þeirra eða um helmingur eru í sveitarfélögunum Árborg og Ölfusi og hefur þeim farið hratt fækkandi frá miðju síðasta ári.

Fleiri íbúð­ir tekn­ar af sölu án þess að selj­ast

Kaupsamningar um íbúðarhúsnæði voru um 700 í nóvember og sé miðað við þriggja mánaða hlaupandi meðaltal og árstíðarleiðréttar tölur eða nóvembermánuð 2022 fækkar samningum um 4% milli mánaða. Ef rýnt er í tölur um fjölda fasteigna sem teknar voru úr sölu í desember þá voru 818 fasteignir teknar úr sem er lítils háttar fækkun frá nóvember þegar 821 fasteignir voru teknar úr sölu. Tölur um fjölda íbúða sem teknar eru úr birtingu af auglýsingasíðum fasteigna fylgjast gjarnan að við fjölda kaupsamninga næstu mánuði þar á eftir vegna þess tíma sem tekur að ganga frá kaupsamningi og þinglýsa. Síðustu mánuði virðist fylgnin á höfuðborgarsvæðinu hafa minnkað sem gæti bent til þess að kaupkeðjan þar sé í einhverju mæli að rofna og þ.a.l. verði ekkert af viðskiptum. Einnig gæti verið að íbúðir séu í auknum mæli teknar úr sölu án þess að seljast.

Ný út­lán í nóv­em­ber ekki ver­ið hærri síð­an 2022

Hrein ný íbúðalán námu 19,1 ma. kr. í nóvember samanborið við 12,9 ma. kr. í október og á föstu verðlagi hafa útlánin í einum mánuði ekki verið meiri síðan í ágúst 2022. Þessi breyting í útlánum hefur ekki leitt til aukinnar veltu á íbúðamarkaði, en hún dróst saman milli mánaða um rúm 6% í nóvember. Verðtryggð lán eru ríkjandi bæði hjá bönkum og lífeyrissjóðum þessi dægrin. Verulegar uppgreiðslur óverðtryggðra lána heimila halda áfram. Þar sem þær uppgreiðslur eiga sér stað hjá bönkum þá voru hrein ný útlán álíka mikil hjá bönkum og lífeyrissjóðum í nóvembermánuði.

Hvar eru ný­bygg­ing­arn­ar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu?

Samkvæmt fasteignaskrá eru 10.910 íbúðir með byggingarár 2021 eða síðar og er 6.331 þeirra á höfuðborgarsvæðinu. Á landsbyggðinni eru 4.579 íbúðir með byggingarár 2021 eða síðar. Á höfuðborgarsvæðinu eru flestar íbúðir með byggingarár 2021 eða síðar í póstnúmeri 221 í Hafnarfirði og þar á eftir kemur póstnúmer 210 í Garðabæ. Í Reykjavík eru flestar íbúðirnar í Vogahverfi (póstnúmer 104), í Laugarnesi (póstnúmer 105), í Norðlingaholti (póstnúmer 110)  og í Grafarholti (póstnúmer 113).

Mánaðarskýrsluna í heild sinni má nálgast hér

Mánaðarskýrsluna í heild sinni má nálgast hér

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS