8. júlí 2026
9. júlí 2026
Íbúðum í byggingu fækkar en byggingaráformum fjölgar á milli mánaða
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- 5.841 íbúð er nú skráð í byggingu samkvæmt mælaborði HMS
- Um 1.400 nýjar íbúðir hafa orðið fullbúnar það sem af er ári
- Minni sérbýli eru í byggingu á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu
Samkvæmt mælaborði íbúða í byggingu er 5.841 íbúð skráð í byggingu á landinu öllu auk 795 byggingaráforma, sem vísa til íbúða sem hafa fengið útgefið byggingarleyfi en framkvæmdir eru ekki hafnar. Íbúðum í byggingu fækkaði þannig á milli mánaða sem þýðir að lokið var við framkvæmdir á fleiri íbúðum heldur en framkvæmdir hófust við á tímabilinu. Skráðum byggingaráformum fjölgaði þó á móti.
Mælaborð HMS um íbúðir í byggingu birtir samantekin gögn úr Mannvirkjaskrá HMS, meðal annars um íbúðir í byggingu, byggingaráform og fullbúnar íbúðir eftir tegund húsnæðis, stærðarflokkun og framvindu.
Framkvæmdum lokið við rúmlega 1.400 nýjar íbúðir á árinu
Það sem af er ári hafa 1.428 nýjar íbúðir orðið fullbúnar víðsvegar um landið samkvæmt mælaborði íbúða í byggingu. Rúmlega helmingur þeirra er þó staðsettur á höfuðborgarsvæðinu, eða 777 íbúðir. Á Suðurlandi hefur framkvæmdum verið lokið við 270 nýjar íbúðir og á Suðurnesjum telja þær 175. Í öðrum landshlutum hafa á bilinu 3 til 90 nýjar íbúðir orðið fullbúnar á árinu.
Áhersla á lítil sérbýli og meðalstór fjölbýli
Þegar borin er saman stærðardreifing sérbýlisíbúða í byggingu og allra fullbúinna sérbýlisíbúða á landinu má sjá að þær sérbýlisíbúðir sem eru í byggingu í dag eru að jafnaði minni en þær sem fyrir eru. Um 24% sérbýlisíbúða í byggingu eru 110 fermetrar eða minni að stærð samanborið við aðeins um 20% af sérbýlisstokknum.
Áherslan á lítil sérbýli er meiri í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og annars staðar á landsbyggðinni þar sem flest sérbýli í byggingu eru 150 fermetrar eða minni að stærð á meðan rúmlega fjórar af hverjum fimm sérbýlisíbúðum í byggingu á höfuðborgarsvæðinu eru stærri en 150 fermetrar.
Þegar kemur að fjölbýlisíbúðum í byggingu virðist áherslan aftur á móti helst vera á meðalstórar íbúðir. Hlutdeild 60 til 80 fermetra íbúða og 80 til 100 fermetra íbúða er hærri meðal fjölbýlisíbúða í byggingu heldur en fullbúinna fjölbýlisíbúða á meðan hlutdeild íbúða sem eru 60 fermetrar eða minni og 100 til 150 fermetrar er lægri.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




