23. apríl 2025
22. apríl 2025
Húsnæðisbætur voru endurreiknaðar 16. apríl
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS framkvæmdi þann 16. apríl síðastliðinn endurreikning á öllum umsóknum um húsnæðisbætur. Endurreikningurinn byggir á nýjustu tekju- og eignaupplýsingum frá Skattinum og er liður í reglubundnu eftirliti með húsnæðisbótum sem fer fram fjórum sinnum á ári.
Við endurreikning húsnæðisbóta er gerð ný áætlun á grundvelli fyrirliggjandi gagna, þar á meðal upplýsingum úr staðgreiðsluskrá Skattsins og aðrar þær forsendur sem hafa áhrif á bótarétt.
Umsækjendur munu á næstu dögum fá send bréf með niðurstöðum endurreiknings hafi orðið breyting á bótafjárhæð frá síðustu tekjuáætlun.
HMS hvetur umsækjendur til að kynna sér niðurstöður endurreikningsins. Ef einhverjar spurningar eða athugasemdir vakna vegna nýrrar tekjuáætlunar er hægt að hafa samband með tölvupósti á hms@hms.is eða í síma 440-6400.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS