18. september 2026

Markaðurinn kólnar enn að mati fasteignasala

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Fasteignasalar telja enn vera að hægjast á umsvifum á fasteignamarkaði
  • Sjö af hverjum tíu fasteignasölum telja verð oft eða alltaf lækka í söluferli
  • Helmingur fasteignasala telur að fasteignamarkaðnum megi lýsa sem miklum kaupendamarkaði

Fasteignamarkaðurinn hefur kólnað enn frekar í byrjun hausts eftir litla virkni yfir sumarmánuðina og verð lækkar oftast í söluferli fasteigna samkvæmt mánaðarlegri könnun HMS til fasteignasala. Fjallað var fyrst um málið í mánaðarskýrslu HMS fyrir septembermánuð.

HMS hefur sent út mánaðarlegar spurningakannanir til félagsmanna í Félagi fasteignasala frá maímánuði árið 2025. Í könnuninni eru fasteignasalar meðal annars spurðir um núverandi stöðu fasteignamarkaðarins út frá eigin reynslu. Síðasta könnunin var framkvæmd vikuna 7.-11. september og alls bárust 80 svör. Félagsmenn í Félagi fasteignasala eru 330, svo svarhlutfall könnunarinnar var 24,2%.

Verð lækk­ar yf­ir­leitt í sölu­ferli

Um 70% aðspurðra töldu verð lækka oft eða alltaf í söluferli fasteigna í mánuðinum. Til samanburðar sögðu undir 30% þeirra að verð lækki stundum í söluferli og einungis 3% fasteignasala sögðu að verð lækki sjaldan eða aldrei í söluferli. Niðurstöðuna má sjá á mynd hér að neðan, en þar sést að hlutfall fasteignasala sem telja að verð lækki oft eða alltaf í söluferli hefur aldrei verið jafnhátt frá því að HMS hóf að kanna stöðuna á fasteignamarkaðnum með þessum hætti.

Mesti kaup­enda­mark­að­ur frá upp­hafi mæl­inga

Fasteignasalar eru einnig spurðir hvort lýsa megi markaðnum sem kaupenda- eða seljendamarkaði þessa stundina. Nota má meðaltalsniðurstöðu úr þeirri spurningu sem hitamæli fyrir fasteignamarkaðinn, þar sem markaðurinn er talinn vera kaldur ef lýsa má honum sem kaupendamarkaði en heitur ef lýsa má honum sem seljendamarkaði.

Sjá má meðalálit fasteignasala um hvernig lýsa megi fasteignamarkaðnum á mynd hér að ofan. Samkvæmt fasteignasölum hefur markaðurinn kólnað á síðustu mánuðum og hefur hann ekki verið kaldari frá því að HMS hóf að spyrja fasteignasala í maímánuði 2025.

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS