25. nóvember 2026

HMS tekur saman kolefnisspor nýbygginga

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • HMS tekur nú reglulega saman kolefnisspor nýbygginga sem sótt er um byggingarleyfi fyrir
  • Fylgst er með hvernig byggingariðnaðurinn miðar í átt að settum loftslagsmarkmiðum
  • Markmiðið er 43% samdráttur í losun samkvæmt Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030

Meðalkolefnisspor á fermetra var yfir settu markmiði í ágúst, september og október. Þetta sýnir ný regluleg samantekt HMS á heildarkolefnisspori bygginganna og meðalkolefnisspori á hvern fermetra. Áður en byggingarleyfisáform eru samþykkt þarf að skila lífsferilsgreiningu til HMS, og þannig er því hægt að fylgjast með kolefnisspori nýbygginga og bera saman við markmið Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð 2030 á vegum samstarfsverkefnisins Byggjum grænni framtíð.

Í Vegvísinum var í fyrsta sinn lagt heildstætt mat á losun frá íslenskum byggingariðnaði og sett markmið um samdrátt í losun til ársins 2030. Þar er stefnt að því að losun frá íslenskum byggingum dragist saman um 43% frá viðmiðunarári Vegvísisins til ársins 2030.

Á viðmiðunarárinu var árlegt heildarkolefnisspor áætlað tæplega 360 þúsund tonn CO₂íg. Markmiðið um 43% samdrátt frá því felur í sér að heildarkolefnissporið verði komið niður í um 205 þúsund tonn CO₂íg á ári árið 2030.

Betri gögn gera kleift að fylgj­ast með þró­un­inni

Í reglulegri samantekt HMS eru notaðir tveir mælikvarðar til að fylgjast með þróun kolefnisspors nýbygginga sem sótt er um byggingarleyfi fyrir. Heildarkolefnisspor sýnir heildar umfang kolefnislosunar íslenskrar mannvirkjaiðnaðar þann mánuðinn. Meðalkolefnisspor á hvern fermetra gerir hins vegar kleift að fylgjast með þróun kolefnisspors íslenskra bygginga án þess að mismikið byggingarmagn í hverri samantekt ráði samanburðinum.

Kol­efn­is­spor á fer­metra yfir mark­miði

Markmiðið um 43% samdrátt til ársins 2030 hefur verið þrepaskipt: 20% samdráttur fyrir tímabilið 2026–2027, 35% fyrir 2028–2029 og loks 43% fyrir árið 2030. Núverandi markmið fyrir meðalkolefnisspor á fermetra er því 10,92 kg CO₂íg/m²/ári. Samkvæmt fyrstu mánaðarlegu samantektunum var meðalkolefnisspor á fermetra hjá nýbyggingum sem sótt var um byggingarleyfi fyrir 12,1 kg CO₂íg/m²/ári í ágúst, 12,5 í september og 14,68 í október. Gildin eru yfir markmiðinu alla þrjá mánuðina, og eru nýhannaðar byggingar því að meðaltali kolefnisfrekari á fermetra en markmiðið gerir ráð fyrir.

Grafið sýnir meðalkolefnisspor á fermetra fyrir öll umsótt byggingarleyfi í ágúst, september, og október, ásamt markmiðum Byggjum grænni framtíð.

Mynd 1: Grafið sýnir meðalkolefnisspor á fermetra fyrir öll umsótt byggingarleyfi í ágúst, september, og október, ásamt markmiðum Byggjum grænni framtíð.

Mánaðarlegt heildarkolefnisspor þarf að skoða samhliða kolefnisspori á fermetra þegar þróunin er metin. Markmiði Byggjum grænni framtíð um heildarkolefnisspor var náð í ágúst, september og október. Það kann þó að skýrast af færri byggingarleyfisumsóknum, sérstaklega í september. Til að ná markmiðum um samdrátt í losun þarf að horfa heildrænt á mannvirkjagerð: draga úr kolefnisspori á hvern fermetra, nýta núverandi byggingar betur, viðhalda þeim vel og draga úr þörf fyrir nýbyggingar og niðurrif.

Grafið sýnir mánaðarlegt heildarkolefnisspor allra umsóttra byggingarleyfa fyrir ágúst, september, og október, ásamt markmiðum Byggjum grænni framtíð.

Mynd 2: Grafið sýnir mánaðarlegt heildarkolefnisspor allra umsóttra byggingarleyfa fyrir ágúst, september, og október, ásamt markmiðum Byggjum grænni framtíð.

Mark­mið­ið um 43% sam­drátt fyr­ir 2030

Markmið samstarfsverkefnisins Byggjum grænni framtíð nær til mismunandi þátta í vistferli bygginga. Losun vegna byggingarefna vegur þar þungt, en einnig er horft til flutninga, verkstaðar, viðhalds, endurbóta og orkunotkunar í rekstri bygginga. Markmiðið var fyrst sett fram í II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð 2030: Markmið og aðgerðir, sem gefinn var út árið 2022.

Við gerð Vegvísisins var lögð áhersla á að markmiðin væru bæði metnaðarfull og raunhæf. Jafnframt var ljóst að betri gögn um losun mannvirkjageirans þyrfti til að fylgjast með árangri og bæta nákvæmni matsins á næstu árum.

Regluleg samantekt HMS eflir gagnagrunninn um kolefnislosun nýbygginga og þar með grundvöll þess að meta hvort þróun mannvirkjagerðar sé í takt við markmiðin til ársins 2030.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS