6. mars 2026
9. mars 2026
HMS samþykkti 31 umsókn um hlutdeildarlán í febrúar 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Heildarfjárhæð samþykktra umsókna nam 448 milljónum króna
- Um 80% samþykktra umsókna voru vegna kaupa á höfuðborgarsvæðinu
- Opnað hefur verið fyrir umsóknir vegna úthlutun í mars
HMS hefur lokið yfirferð umsókna sem bárust í febrúar vegna hlutdeildarlána. Alls bárust 79 umsóknir og var 31 þeirra samþykkt. Heildarfjárhæð umsókna nam yfir 1,3 milljörðum króna, en til úthlutunar voru að lágmarki 458 milljónir króna.
Umsækjendur með samþykkt kauptilboð nutu forgangs
Vegna mikillar eftirspurnar var umsóknum, líkt og í janúar, forgangsraðað og eingöngu afgreiddar þær umsóknir þar sem samþykkt kauptilboð lá fyrir í eignum sem HMS hafði þegar metið og samþykkt sem lánshæfar.
Mikill meirihluti samþykktra umsókna var vegna kaupa á íbúð á höfuðborgarsvæðinu, eða um 80%. Aðrar samþykktar umsóknir voru í nærliggjandi sveitarfélögum. Af samþykktum umsóknum voru 17 frá einstaklingum, sem er rúmlega helmingur.
Fjöldi og fjárhæðir samþykktra hlutdeildarlána í febrúar má sjá í töflu hér að neðan.
Opið er fyrir mars umsóknir
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





