24. mars 2026
25. mars 2026
Aðgerðir í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Aðgerðir í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030 styðja við innleiðingu hringrásarhagkerfisins
- Grænni byggð vinnur að leiðbeiningum um endurnotkun byggingarvara
- Leiðbeiningar um sértækt niðurrif og hringrásarhönnun eru á heimasíðu Hringvangs
Aðgerðir í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030 sem styðja við hringrásarhagkerfið
Grænni byggð lauk á dögunum tveimur mikilvægum aðgerðum í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030 sem styðja við upptöku hringrásarhagkerfis í íslenskum byggingariðnaði. Aðgerðirnar, 4.9. og 4.10., snúa að undirbúningi fyrir endurnýtingu byggingarefna, úrgangsforvörnum og sértæku niðurrifi, en þetta eru lykilþættir í að draga úr sóun og stuðla að sjálfbærri mannvirkjagerð.
Aðgerð 4.9.: Leiðbeiningar um úrgangsforvarnir, undirbúning fyrir endurnotkun og endurvinnslu
Aðgerð 4.9. felur í sér þróun ítarlegra leiðbeininga sem styðja hönnuði, verktaka og aðra hagaðila við að innleiða hringrásarsjónarmið í allri hönnun og framkvæmd mannvirkjagerðar. Leiðbeiningarnar byggja á niðurstöðum úr aðgerð 4.2., reynslu innlendra sérfræðinga, og erlendum fyrirmyndum.
Markmið leiðbeininganna er að tryggja að hönnun mannvirkja taki mið af fullum líftíma byggingar, allt frá notkun og viðhaldi til niðurrifs og mögulegrar endurnotkunar efnis.
Leiðbeiningarnar innihalda m.a.:
- skref-fyrir-skref aðferðir til mats og vinnslu byggingarefna
- hagnýtar leiðir til að endurnota og endurvinna efni á ábyrgan hátt
- dæmi úr raunverulegum verkefnum
- bestu starfsvenjur frá Íslandi og erlendis
Unnið er með fjölbreytt efni, svo sem eldvarnarbúnað, pípulagnir, loftræsikerfi, hitakerfi, hreinlætistæki og hurðir.
Mynd tekin af heimasíðu Hringvangs, www.hringvangur.is
Aðgerð 4.10.: Leiðbeiningar um forskoðanir og sértækt niðurrif
Aðgerð 4.10. fjallar um meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs með áherslu á úrgangsforvarnir, endurnotkun og endurvinnslu. Leiðbeiningarnar eru byggðar á innlendri og erlendri reynslu og eru ætlaðar sem verkfæri fyrir alla sem taka ákvarðanir um endurbætur, endurbyggingu eða niðurrif.
Meginefni leiðbeininganna:
Forskoðanir („úrgangsúttektir“)
– Mat á möguleikum til endurnotkunar áður en framkvæmdir hefjast
– Upplýsingasöfnun um byggingarvörur og efni
– Greining á skaðlegum efnum og áætlanagerð vegna réttrar meðhöndlunar
Sértækt niðurrif
– Aðferðir við nákvæmt niðurrif til að hámarka nýtingu efna
– Leiðir til að draga úr úrgangi og tryggja rétta flokkun
– Dæmi um útfærslur og bestu starfsvenjur frá öðrum löndum
Hvar finn ég leiðbeiningarnar?
Leiðbeiningarnar eru aðgengilegar undir Fræðsla og miðlun á heimasíðu Hringvangs, sem er tengslanet opið öllum þeim sem hafa áhuga á hringrásarhagkerfinu í tengslum við byggingariðnaðinn. Hlekki má einnig finna á heimasíðu Byggjum grænni framtíð:
· 4.10. Gefa út leiðbeiningar um ábyrgt niðurrif - Byggjum Grænni Framtíð
Vinnan heldur áfram – Aðgerð 4.12. brátt tilbúin
Verkefnið heldur áfram að þróast og Grænni byggð er að ljúka vinnu við aðgerð 4.12, „Hagnýtar leiðbeiningar um endurnotkun byggingarvara“. Leiðbeiningarnar munu taka til rúmlega 30 algengra byggingarefna og byggingarvara á Íslandi og fjalla um helstu atriði sem snúa að endurnotkun þeirra, þar á meðal hugsanlegar hættur og viðeigandi reglugerðir. Verkefnið hlaut styrk úr Aski mannvirkjarannsóknarsjóði.
· 4.12. Hagnýtar leiðbeiningar um endurnotkun byggingarvara - Byggjum Grænni Framtíð
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





