5. október 2026

Hluti heimila sem fékk greiddar húsnæðisbætur í september býr við lága byrði leigukostnaðar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • HMS greiddi 946 milljónir í húsnæðisstuðning í september
  • Fimmtungur heimila sem þáði bætur hefði greitt minna en fjórðung heildartekna heimilis í leigu þótt ekki hefði komið til greiðslu bóta
  • Skerðingarmörk vegna byrði leigukostnaðar hefðu skert bætur til 43% heimila að hluta til eða að fullu

HMS greiddi tæpan milljarð króna í húsnæðisstuðning til 17.872 heimila á leigumarkaði vegna leigu í september 2026. Um fimmtungur viðtakenda almennra húsnæðisbóta í mánuðinum hefði greitt minna en 25% af heildartekjum heimilisins í leigu ef ekki hefði komið til greiðslu bótanna. HMS hefur lagt til að skerðingarmörk vegna byrði leigukostnaðar verði innleidd í húsnæðisbótakerfið.

Tæp­ur millj­arð­ur króna var greidd­ur í hús­næð­isstuðn­ing vegna leigu í sept­em­ber

Þann 1. október síðastliðinn greiddi HMS um 946 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í september. Greiðslurnar miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði tekju- og efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra.

Stærsti hluti greiðslna í september var vegna almennra húsnæðisbóta, en HMS greiddi tæpar 912 milljónir króna til um 17.872 heimila í almennar húsnæðisbætur.

Á mynd hér að neðan má sjá byrði leigukostnaðar meðal heimila sem þiggja húsnæðisbætur. Alls hefðu 80% heimilanna greitt meira en fjórðung af heildartekjum heimilisins í leigu ef þau hefðu ekki fengið bætur. Eftir að tekið hefur verið tillit til greiðslu bóta greiddu aftur á móti um 57% heimilanna hærri fjárhæð en sem nemur fjórðungi af heildartekjum í leigu í mánuðinum.

Skerð­ing­ar­mörk hefðu skert bæt­ur hjá 43% heim­ila í sept­em­ber

HMS gaf nýverið út vegvísi að markvissari húsnæðisstuðningi við leigjendur þar sem lagðar voru fram fjórar tillögur. Ein af tillögunum sneri að því að innleiða skerðingarmörk vegna byrði leigukostnaðar í húsnæðisbótakerfið. Með hliðsjón af ásættanlegri byrði leigukostnaðar innan almenna íbúðakerfisins lagði HMS til að bætur skerðist eða falli niður þegar leiga nemur lægra hlutfalli en 25 % af heildartekjum heimilis. Þeir fjármunir sem sparast með þeirri breytingu yrðu færðir yfir í almenna íbúðakerfið til að styðja við uppbyggingu hagkvæms húsnæðis.

Með innleiðingu skerðingarmarkanna hefði bótaréttur fallið niður hjá um 20% heimila, þar sem byrði leigukostnaðar var undir 25% mörkunum fyrir greiðslu bóta. Þar að auki hefðu bætur skerst hjá um 23% heimila til viðbótar, þar sem bótafjárhæð lækkaði byrði leigukostnaðar undir 25% mörkin. Í heildina hefðu skerðingarmörkin þannig leitt til bótaskerðingar að hluta til eða í heild hjá um 7.746 heimilum, eða um 43% þeirra heimila sem þáðu húsnæðisbætur vegna leigu í september.

Innleiðing skerðingarmarka hefði lækkað heildarupphæð greiddra bóta um 248 milljónir króna vegna leigu í september, eða um 27%. Þar af hefðu bætur lækkað um 150 milljónir króna vegna skerðingar að fullu og um 98 milljónir króna vegna skerðingar að hluta.

Þess ber að geta að framangreindar niðurstöður byggja á tekjum umsækjenda samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK. Endanlegar upplýsingar um heildartekjur heimila sem þiggja húsnæðisbætur í ár munu ekki liggja fyrir fyrr en eftir framtalsskil næsta vor.

Sér­stak­ur hús­næð­isstuðn­ing­ur fyr­ir heim­ili í Skaga­firði og Kópa­vogi

HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluta af tilraunaverkefni stjórnvalda. Í september voru greiddar tæpar 34 milljónir króna til 1.108 heimila í Kópavogi og 77 heimila í Skagafirði. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á vegum sveitarfélaganna og er honum ætlað að styðja við þá sem eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði vegna fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna.

Tilraunaverkefnið hefur gefið góða raun með aukinni skilvirkni í afgreiðslu umsókna og einfaldara ferli gagnvart leigjendum. Í vegvísi að markvissari húsnæðisstuðningi við leigjendur lagði HMS til að kerfi almennra húsnæðisbóta og sérstaks húsnæðisstuðnings verði samþætt í eitt heildstætt kerfi. Fyrsta skrefið verði að sameina umsóknarferli og eftir atvikum umsóknarkerfi þannig að hægt verði að sækja um allan stuðning á einum stað.  

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS