10. febrúar 2026

Hlutdeildarlán samþykkt fyrir 31 umsókn í janúar 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Umframeftirspurn var eftir hlutdeildarlánum í janúar
  • Heildarfjárhæð hlutdeildarlána í samþykktum umsóknum nam 419 milljónum króna  
  • Hámörk á lánshlutfalli og tekjum umsækjenda hækkuðu með nýjum viðmiðum sem tóku gildi um áramótin

HMS samþykkti alls 31 umsókn um hlutdeildarlán í síðustu úthlutun lánanna sem fór fram í janúar. Heildarvirði samþykktra lána nam 419 milljónum króna, en eftirspurnin eftir lánunum var tæplega tvöfalt meiri. Með nýjum viðmiðum sem tóku gildi um síðustu áramót geta lánveitendur nú sótt um hærra lánshlutfall og verið með rýmra eiginfjárframlag, auk þess sem þeir geta verið með hærri tekjur.

Sótt um fyr­ir 817 millj­ón­ir en 458 millj­ón­ir voru til út­hlut­un­ar

Opnað var fyrir umsóknir um hlutdeildarlán þann 6. janúar með rýmkuðum skilyrðum. Úthlutunartímabilið stóð í tvær vikur og bárust HMS samtals 55 umsóknir að heildarfjárhæð um 817 m.kr. Til úthlutunar voru 458 m.kr. og var því um umframeftirspurn að ræða.

Í ljósi þessa var umsóknum forgangsraðað og einungist afgreiddar þær umsóknir þar sem kauptilboð lá fyrir í eignum sem HMS hafði þegar metið og samþykkt sem lánshæfar. Samþykktar umsóknir í janúar voru 31 talsins og samtals lánsfjárhæð þeirra nam um 419 m.kr. Aðrar umsóknir voru, í samráði við umsækjendur, færðar yfir í úthlutun í febrúar.

Alls voru 24 umsóknir samþykktar vegna kaupa á íbúð á höfuðborgarsvæðinu, þar af 21 í Hafnarfirði, tvær í Mosfellsbæ og ein í Reykjavík. Þá voru fjórar umsóknir samþykktar vegna kaupa á Suðurlandi og þrjár vegna kaupa á Suðurnesjum. Um 62% umsókna í janúar (34 af 55) voru frá einstaklingum, en hlutfallið var um helmingur árið 2025. Af 31 samþykktum umsóknum voru 19 til einstaklinga.

Ný við­mið tóku gildi um ára­mót

Þann 18. desember var samþykkt frumvarp á Alþingi um breytingar á reglum um hlutdeildarlán. Markmið breytinganna var að festa úrræðið í sessi, auka skilvirkni og tryggja fyrirsjáanleika gagnvart lántökum og byggingaraðilum.

Helstu breytingar voru:

  • Hærra lánshlutfall: Hlutfall hlutdeildarláns af kaupverði hækkaði úr 20% í allt að 25% fyrir almenn hlutdeildarlán og úr 30% í 35%  fyrir umsækjendur undir lægri tekjumörkum.
  • Rýmra eiginfjárframlag: áfram er lágmarkið 5%, en nú má leggja fram allt að 10% án skerðingar á hlutdeildarláni.
  • Hækkuð tekjumörk fyrir einstaklinga og hjón/sambúðarfólk.
  • Greiðslubyrði einstaklinga rýmkuð: meðalafborganir fasteignaláns mega nú vera allt að 45% af ráðstöfunartekjum (áður 40%). Óbreytt fyrir hjón/sambúðarfólk.
  • Hækkuð hámarksverð og fleiri verðflokkar (úr 3 í 4) til að auka framboð íbúða sem uppfylla skilyrði og takmarka verðhækkanir.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um hlutdeildarlán vegna úthlutunar í febrúar og mun umsóknartímabilið standa til kl. 12:00 þann 16. febrúar. Til úthlutunar fyrir tímabilið verða 458 milljónir króna. 

Nánari upplýsingar um hlutdeildarlán og umsóknarferlið má finna á Ísland.is

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS