15. október 2026
Framboð íbúða til sölu hefur aukist mikið á öllum landsvæðum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Framboð íbúða til sölu er nú meira en áður á öllum þremur landsvæðunum
- Frá október í fyrra hefur framboð aukist um 26% á höfuðborgarsvæðinu, 31% í nágrenni þess og 38% annars staðar á landsbyggðinni
- Nýjar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu eru mun meira bundnar við meðalstóra stærðarflokka en aðrar íbúðir til sölu
Framboð íbúða til sölu hefur aukist mikið um land allt undanfarin misseri. Í október voru rúmlega 4.050 íbúðir til sölu á höfuðborgarsvæðinu, um 1.425 í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og rúmlega 1.250 annars staðar á landsbyggðinni. Þetta er á meðal þess sem fjallað verður um í mánaðarskýrslu HMS fyrir októbermánuð, sem kemur út þann 22. október.
Á höfuðborgarsvæðinu hefur framboð aukist um 828 íbúðir frá október í fyrra, eða um 26%. Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins hefur íbúðum til sölu fjölgað um 338, eða 31%, og annars staðar á landsbyggðinni um 343, sem jafngildir tæplega 38% fjölgun.
Þróunin hefur verið sérstaklega hröð síðustu tvö ár. Frá október 2024 hefur framboð aukist um rúmlega 70% á höfuðborgarsvæðinu, meira en tvöfaldast í nágrenni þess og aukist um um 55% annars staðar á landsbyggðinni. Aukið framboð er því ekki bundið við eitt landsvæði heldur hefur orðið víða um land.
Nýjar íbúðir til sölu eru einkum meðalstórar
Auk þess að framboð hefur aukist mikið er samsetning þess ólík eftir því hvort horft er til nýrra eða annarra íbúða. Á höfuðborgarsvæðinu eru um tveir þriðju hlutar nýrra íbúða til sölu á bilinu 80–129 fermetrar, samanborið við tæplega helming annarra íbúða. Munurinn er mestur meðal íbúða sem eru 80–99 fermetrar, en þær eru um þriðjungur nýrra íbúða til sölu samanborið við um fimmtung annarra íbúða.
Stærstu íbúðirnar eru aftur á móti mun algengari meðal annarra íbúða á söluskrá. Íbúðir sem eru 170 fermetrar eða stærri eru um 18% annarra íbúða til sölu en aðeins um 6% nýrra íbúða. Minni íbúðir undir 80 fermetrum eru einnig hlutfallslega færri meðal nýrra íbúða. Meðal nýrra íbúða er framboðið meira bundið við meðalstórar íbúðir, en stærðardreifing annarra íbúða til sölu er jafnari.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




