9. september 2026
9. september 2026
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Um 80% íbúða seldust undir auglýstu verði í júlí
- Miðgildi afsláttar var 3,1% eða um 2,4 milljónir króna
- Aðeins 6% íbúða seldust yfir auglýstu verði í júlí
Kaupendur hafa meira svigrúm til að semja um verð en fyrir tveimur árum. Mikill meirihluti íbúða selst undir auglýstu verði og afslátturinn hefur aukist. Munurinn á kaupverði og auglýstu verði er jafnframt meiri þegar eign selst undir auglýstu verði en þegar hún selst yfir því.
Þetta er á meðal þess sem fjallað verður um í mánaðarskýrslu HMS fyrir septembermánuð sem kemur út þann 17. september.
Sífellt fleiri íbúðir seljast undir auglýstu verði
HMS hefur á undanförnum misserum fjallað reglulega um þróun á mun kaupverðs og auglýsts söluverðs en hlutfall íbúða sem seljast undir auglýstu verði hefur farið vaxandi á síðustu tveimur árum. Á sama tíma hefur dregið úr hlutfalli þeirra eigna sem seljast yfir auglýstu verði eða á því verði sem óskað var eftir.
Í september 2024 seldust tæplega 60% íbúða undir auglýstu verði en hlutfallið var komið í um 80% í júlí síðastliðnum. Á sama tímabili lækkaði hlutfall íbúða sem seldust yfir auglýstu verði úr um 20% í 6%. Hlutfall þeirra sem seldust á auglýstu verði lækkaði jafnframt úr rúmlega 20% í um 15%.
Afslátturinn hefur einnig aukist
Miðgildi afsláttar meðal íbúða sem seldust undir auglýstu verði var lengst af 2,3–2,7%, en hækkaði í 3,1% í júní og júlí 2026. Í júlí nam miðgildi afsláttarins um 2,4 milljónum króna, sem var hæsta gildi tímabilsins.
Miðgildi álags á íbúðir sem seldust yfir auglýstu verði var hins vegar um 1,3%, eða um ein milljón króna, í júlí. Þegar kaupverð víkur frá auglýstu verði er frávikið því almennt meira til lækkunar en hækkunar.
Niðurstöðurnar byggja á kaupsamningum þar sem upplýsingar liggja fyrir um kaupverð og síðasta skráða auglýsta verð eignar. Miðgildi er notað til að draga úr áhrifum viðskipta með óvenjulega mikinn verðmun.
Nýr póstlisti hagdeildar HMS
Hagdeild HMS hefur útbúið nýjan póstlista fyrir alla sem vilja fylgjast með húsnæðismálum. Áskrifendur póstlistans munu fá helstu greiningar sendar til sín úr mánaðarskýrslum HMS, ásamt tilfallandi greiningum um fasteigna-, leigu-, lána- og byggingarmarkaðinn og auglýsingum um komandi viðburði.
Hægt er að skrá sig á póstlistann með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.
Póstlisti Hagdeildar HMS
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




