16. apríl 2026

Færri skoða eignir í fyrstu viku sölutíma samkvæmt fasteignasölum 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Það hægir á umsvifum á fasteignamarkaði að mati fasteignasala 
  • Flestir fasteignasalar telja verð fara lækkandi í fasteignakaupum
  • Virkni jókst hins vegar á fasteignamarkaðnum á milli febrúar og mars 

Virkni fasteignamarkaðarins er lítil miðað við árstíma og fáir skoða eignir í fyrstu viku sölutíma þessa stundina, samkvæmt niðurstöðum úr könnun HMS meðal fasteignasala sem framkvæmd var í tólfta sinn þann 8. apríl síðastliðinn. Niðurstöðurnar bera merki um áframhaldandi kólnun á fasteignamarkaði og verðlækkanir að mati fasteignasala. Færri kaupsamningum var þinglýst í febrúar síðastliðnum samanborið við febrúar í fyrra.  

Hæg­ir á mark­aðn­um að mati fast­eigna­sala

Fasteignasalar greina kólnun á markaði og í byrjun apríl töldu níu af hverjum tíu fasteignasölum virkni markaðarins vera frekar litla eða mjög litla miðað við árstíma. Hlutfallið var 91% í byrjun nóvember á síðasta ári, þegar óvissa á lánamarkaði var mikil í kjölfar dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu, en hafði en lækkaði eftir að óvissunni var eytt. Hlutfall fasteignasala sem telja virknina mjög litla er þó lægra nú, eða 35% samanborið við 49% í byrjun nóvember 2025.

Á sama tíma og fasteignasalar telja virkni markaðar vera litla miðað við árstíma telja þeir verðþróun á markaðnum einkennast í auknum mæli af verðlækkunum. Um sjö af hverjum tíu fasteignasölum töldu verð fara lækkandi í byrjun apríl, samanborið við um 60% í byrjun mars og 50% í byrjun febrúar.

Fleiri íbúð­ir til sölu og færri skoða eign­ir í fyrstu viku sölu­tíma

Framangreind þróun á mati fasteignasala endurspeglar meðal annars þróun á framboði íbúða til sölu að undanförnu. Líkt og sjá má á myndinni hér að neðan hefur framboðið aukist mjög undanfarið á landsvísu, hvort sem litið er til nýrra íbúða eða annarra íbúða. Um 6.200 íbúðir voru til sölu í byrjun aprílmánaðar og hefur þeim fjölgað um rúmlega 1.800 á einu ári.

Aðsókn í opin hús og einkaskoðanir á fasteignum til sölu gefa góða vísbendingu um fjölda mögulegra kaupenda á markaðnum. Samkvæmt niðurstöðum úr könnun HMS meðal fasteignasala hefur fækkað í hópi þeirra sem skoða hverja fasteign á fyrstu viku sölutíma hennar. Nýjustu mælingar sýna að algengast sé að innan við fjórir skoði hverja eign á fyrstu viku sölutíma, en í mars var álíka algengt að fjöldinn væri á bilinu 4 til 8.

Kaup­samn­ing­um fækk­aði um 8% milli ára í febr­ú­ar

Rétt um 800 kaupsamningum um íbúðarhúsnæði var þinglýst á landinu öllu í febrúar síðastliðnum, samkvæmt upplýsingum úr mælaborði um veltu og fjölda kaupsamninga. Færri kaupsamningum var þinglýst í nýliðnum febrúarmánuði samanborið við í febrúarmánuðum áranna 2025 og 2024, en 877 kaupsamningum var þinglýst í febrúar í fyrra og árið 2024 voru þeir rúmlega þúsund talsins. 

Þegar þessi frétt er birt hafði 949 kaupsamningum um íbúðarhúsnæði þegar verið þinglýst í marsmánuði en 1.113 kaupsamningum var þinglýst í mars í fyrra. Þeim gæti þó enn fjölgað þar sem allt að sex vikna töf getur verið á því að kaupsamningar komi fram í mælaborðinu sökum þess tíma sem tekur að ganga frá og þinglýsa samningunum. 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS