14. apríl 2026
14. apríl 2026
Uppfærsla leiðbeininga og gagnalýsinga ásamt sniðmátum fyrir stafrænt skipulag
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Ný útgáfa leiðbeininga fyrir stafrænt aðal- og deiliskipulag ásamt gagnalýsingum er nú komin út
- Nýjustu útgáfurnar má finna á island.is síðu HMS
- Gagnalýsingu og leiðbeiningum er ætlað að samræma stafræn gögn skipulags og auðvelda notkun þeirra
Ný útgáfa leiðbeininga fyrir stafrænt aðal- og deiliskipulag ásamt gagnalýsingum er nú komin út. Nýja útgáfu má finna á vef HMS. Um er að ræða endurskoðun og uppfærslu tiltekinna atriða í leiðbeiningum og gagnalýsingu, með það fyrir augum að ná betur utan um viðfangsefni aðal- og deiliskipulagsáætlana og tryggja betur samræmi. Leiðbeiningarnar eru gefnar út á nýju sniði, í kjölfar sameiningar Skipulagsstofnunar í eina stofnun á sviði húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsmála.
Helstu breytingar
Með nýjum sniðmátum fyrir stafrænt aðalskipulag og deiliskipulag er nú hægt er að velja viðeigandi gildi fyrir tegundir beint af fellilista. Þannig er hægt að tryggja betra samræmi þvert á gögnin. Einnig voru teknir út eigindadálkar sem eiga að vera útfylltir af HMS.
Í gagnalýsingu stafræns deiliskipulags voru gerðar breytingar á tilbúnum gildum sem tengjast tegundum byggingarreita, kvaða og samgangna:
Undir byggingarreit bætast við tegundirnar:
- „Samgöngustöð“
- „Starfsmannaíbúðir“
Undir kvaðir bætast við tegundirnar:
- „Helgunarsvæði fornleifa“
- „Gróður“ breytist í „Gróður og landmótun“
- „Aðgengi gangandi/hjólandi“
- „Aðkoma” breytist í „Aðkoma ökutækja“
Undir samgöngur bætist við tegundin:
- „Sporbundin umferð/umferð í sérrými“
Sömuleiðis var nýjum eigindadálki bætt við fitjutegundina Lóðir svo að unnt verði að skrá hámarksfjölda íbúða á hverri lóð. Ef sundurliðun á fjölda íbúða eftir byggingarreitum liggur fyrir skal jafnframt skrá þær upplýsingar undir fitjutegundinni Byggingarreitir.
Hvað er gagnalýsing og leiðbeiningar fyrir stafrænt skipulag?
Gagnalýsing lýsir tilhögun og innihaldi stafrænna skipulagsgagna. Gagnalýsingu er ætlað að samræma stafræn gögn skipulags og auðvelda notkun þeirra og túlkun. Leiðbeiningunum er svo ætlað að auðvelda þeim sem sinna gerð skipulags að útbúa stafræn skipulagsgögn í samræmi við gagnalýsingu.
Við hvetjum ykkur til að sækja nýjustu útgáfurnar sem finna má á síðu HMS undir stafrænt skipulag og landupplýsingar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




