14. apríl 2026
14. apríl 2026
Ársskýrsla markaðseftirlits raffanga fyrir árið 2025
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- 304 heimsóknir til söluaðila og 8.575 rafföng skimuð
- 74 rafföng tekin til nánari skoðunar vegna mögulegra frávika
- Engin sölubönn, en 14 tilmæli um úrbætur send til söluaðila
HMS annast markaðseftirlit með rafföngum á Íslandi. Stofnunin aflar á skipulegan hátt upplýsinga um rafföng á markaði og tekur við ábendingum frá notendum og öðrum aðilum. Faggilt skoðunarstofa, BSI á Íslandi ehf, annast í umboði HMS framkvæmd skoðana á rafföngum á markaði í samræmi við gildandi samning hverju sinni, verklagsreglur og skoðunarhandbók stofnunarinnar.
BSI hefur nú birt ársskýrslu fyrir markaðseftirlit raffanga á árinu 2025. Samkvæmt skýrslunni fór BSI samtals í 304 heimsóknir til söluaðila raffanga á árinu, heimsóknirnar fela í sér lauslega skoðun á sem flestum rafföngum á hverjum stað með það að markmiði að sigta út rafföng sem ekki uppfylla öryggiskröfur, ákvæði um rafsegultruflanir eða formkröfur. Alls „skimaði“ BSI 8.575 rafföng í heimsóknum sínum og skoðaði 74 rafföng nánar vegna gruns um að þau uppfylltu ekki kröfur. Af skimuðum rafföngum flokkuðust flest sem lýsingarbúnaður (2.108), raflagnabúnaður (1.736), ýmiss konar heimilistæki (1.658) og spennugjafar og hleðslutæki (1.011).
HMS setur sölubönn á rafföng sem alvarlegar athugasemdir eru gerðar við, ekkert slíkt var sett á árinu 2025 en send voru 14 skrifleg tilmæli til söluaðila um úrbætur á rafföngum sem athugasemdir voru gerðar við. Að auki aðstoðaði stofnunin ábyrgðaraðila varðandi úrbætur og innkallanir á rafföngum.
Ársskýrsla - Markaðseftilit raffanga
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




