21. ágúst 2026

Hátt í 20 framleiðendur brunahólfandi innihurða hafa óskað eftir stuðningi Burðar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Vel á annan tug framleiðenda brunahólfandi innihurða hafa óskað eftir stuðningi Burðar
  • Tveggja ára aðlögunartíma vegna brunahólfandi innihurða lýkur 1. október 2026
  • Brunaprófanir eru lykilforsenda fyrir öryggi og áreiðanleika brunahólfandi byggingavara fyrir neytendur

Í mars 2024, tilkynnti HMS um breytt verklag varðandi staðfestingar HMS á nothæfi brunahólfandi innihurða og tók gildi tveggja ára aðlögunartími í beinu framhaldi. Markmiðið er meðal annars að tryggja áreiðanlegri staðfestingar á nothæfi brunahólfandi hurða  sem gegna lykilhlutverki við að takmarka útbreiðslu elds í mannvirkjum.

Í mars 2026 var ákveðið að framlengja aðlögunartímann um sex mánuði til að styðja við markaðinn og tryggja eins og kostur er að hann uppfylli lögbundnar kröfur. Jafnframt var tilkynnt að Burður, nýr samstarfsvettvangur um rannsóknir og prófanir í mannvirkjagerð, myndi styðja íslenska hurðaframleiðendur við að senda hurðir í brunaprófanir til faggilts prófunaraðila erlendis, þar sem slíkur aðili er ekki starfandi hér á landi. Alls hafa hátt í tuttugu framleiðendur óskað eftir slíkum stuðningi Burðar.

Stuðn­ing­ur Burð­ar við fram­leið­end­ur

Burður er í samtali við DBI (Danish Institute of Fire and Security) og mun stuðningur við íslenska framleiðendur m.a. felast í því að Burður:

  • hafi umsjón með flutningi á hurðum frá hópi íslenskra framleiðenda frá Íslandi til Danmerkur,
  • tryggi aðgengi að brunaprófunum hjá DBI, tengi íslenska framleiðendur við ráðgjafa DBI eftir þörfum.

Athygli er vakin á því að framleiðendur bera sjálfir kostnað af prófunum á sínum vörum.

Það er mikilvægt að framleiðendur hefji samtal við faggiltan prófunaraðila, sem sagt DBI, eins fljótt og kostur er.

Mögu­leiki á sam­eig­in­legri nýt­ingu próf­un­ar­gagna

HMS vill jafnframt upplýsa rekstraraðila um möguleika á að nýta niðurstöðu prófunar ákveðins hurðarsetts sem lið í staðfestingu á nothæfi hurðargerðar sem er framleidd hjá fleiri en einum framleiðanda. Það getur einfaldað ferlið þegar sömu hurðargerðir eru framleiddar af fleiri aðilum, enda séu uppfyllt þau skilyrði sem gilda um nýtingu prófunargagna og tæknilegra upplýsinga.

Framleiðendur brunahólfandi innihurða hérlendis eru hvattir til að setja sig í samband við tilkynnta aðila, t.d. DBI, sem geta veitt frekari ráðgjöf um mögulegar leiðir til að nýta tæknigögn milli framleiðenda og um nánari skilyrði fyrir því.

Að­lög­un­ar­tíma lýk­ur við næstu mán­að­ar­mót

Aðlögunartíma vegna breytts verklags lýkur 1. október 2026. Hurðir sem seldar eru fyrir lok aðlögunartímabilsins má setja upp eftir þann tíma, enda sé hægt að sýna fram á með skýrum hætti að salan hafi átt sér stað innan frestsins, sjá nánar leiðbeiningar til söluaðila brunahólfandi innihurða.

Brunahólfandi innihurðir gegna lykilhlutverki í útbreiðslu elds í mannvirkjum og því er mikilvægt að þær sæti prófunum hjá faggiltum prófunarstofum. Slíkar prófanir eru forsenda þess að neytendur geti treyst vörunum, bæði hvað varðar öryggi og virkni.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS