13. maí 2025
11. mars 2024
Árlegur endurútreikningur brunabótamats er framkvæmdur í lok maí
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Vegna umræðu um árlegan endurútreikning brunabótamats og áhrifa hans á brunabótamat einstakra eigna vill HMS koma á framfæri upplýsingum um tilgang og framkvæmd hans.
Brunabótamat er endurskoðað árlega út frá verði á byggingarefnum á borð við steypu, stáli og timbri (frumþáttaverðum) og uppfærist þess á milli mánaðarlega út frá byggingarvísitölu. Með því að tengja kostnaðarmatslíkan húseigna við byggingarefni er brunabótamatið endurreiknað með nákvæmari hætti, þar sem t.d. brunabótamat timburhúsa er byggt hlutfallslega meira á verði timburs en brunabótamat steinsteyptra húsa.
Útgáfa endurútreiknings brunabótamats er 31.maí ár hvert og miðast það við verð byggingarefna er það svo uppfært miðað við vísitölu mánaðarlega frá áramótum.
Endurútreikningurinn felur í sér yfirferð mikils fjölda breyta sem geta bæði haft áhrif til hækkunar eða lækkunar brunabótamats einstakra húsa. Niðurstaðan byggir að miklu leyti á því hversu vel einstaka frumþáttaverð, sem samtals eru tæplega 500, hafa fylgt byggingarvísitölu frá því brunabótamatið var síðast endurreiknað og hlutfall hvers og eins í brunabótamati hvers húss hefur þar mest að segja.
Við endurútreikninginn eru afskriftir eignarinnar einnig reiknaðar sem hefur áhrif til lækkunar brunabótamats. Þá liggur fyrir í ár að stjórnvöld hafa lækkað hlutfall endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði úr 60% í 35% frá því brunabótamat var síðust endurreiknað og mun það hafa einhver áhrif til hækkunar brunabótamats.
Á síðustu árum hafa frumþáttaverð fylgt nokkuð vel byggingarvísitölu og endurútreikningurinn ekki haft umtalsverð áhrif á brunabótamat einstakra húseigna. Hins vegar er ómögulegt að spá fyrir um áhrif endurútreiknings þessa árs fyrr en hann verður framkvæmdur.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS