7. ágúst 2026

Umhverfismat í júní- og júlímánuði

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Í júní og júlí voru gefin út 23 álit eða ákvarðanir á grundvelli laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana
  • Þar af voru 5 álit um umhverfismat, 3 álit um matsáætlun og 15 ákvarðanir um matsskyldu framkvæmdar
  • Um er að ræða fjölbreyttar framkvæmdir, svo sem gagnaver, landeldi, sjókvíaeldi, sláturhús, vindorkuver, vegagerð, vatnsaflsvirkjanir og efnistaka

Álit um umhverfismat

Aukið sjókvíaeldi í Arnarfirði á vegum Arnarlax – álit um umhverfismat

Arnarlax áformar að auka umfang sjókvíaeldis fyrirtækisins í Arnarfirði úr 11.500 tonna hámarkslífmassa í 16.000 tonn og stækka eldissvæðin úr 5,9 km2 í 29 km2.

Stækkun landeldisstöðvar í Vestmannaeyjum – álit um umhverfismat

Laxey hf. áformar að stækka landeldisstöð sína og sækja um leyfi fyrir allt að 42.000 tonnum á ári. Núverandi leyfi heimilar hámarks lífmassa upp í allt að 7.000 tonnum en eftir stækkun verði hámarks lífmassi í stöðinni allt að 22.000 tonn í fullum rekstri. Einnig eru áform um að reisa aðra seiðaeldisstöð á athafnarsvæði vestan við Viðlagafjöru þar sem hámarks lífmassi verði allt að 300 tonn.

Vindorkuver að Hróðnýjarstöðum – álit um umhverfismat

Stormorka ehf. áformar að reisa 118,8 MW vindorkuver á 415 ha svæði í landi Hróðnýjarstaða í Dalabyggð. Gert er ráð fyrir að reisa 18 vindmyllur á framkvæmdasvæðinu og að afl hverrar verði 6,6 MW.

Stækkun Sigöldustöðvar – álit um umhverfismat

Uppsett afl Sigöldustöðvar er 150 MW. Fyrirhuguð áform ganga út á að auka afl stöðvarinnar í allt að 215 MW.

Norðausturvegur um Skjálfandafljót í Kinn –  Álit um umhverfismat

Vegagerðin fyrirhugar vegabætur á um 9-10 km löngum kafla Norðausturvegar (85) um Skjálfandafljót í Kinn.

Álit um matsáætlun

Botnsvirkjun í Dýrafirði – álit um matsáætlun

Botnsorka ehf. áformar að reisa Botnsvirkjun í Dýrafjarðarbotni. Áætlað er að uppsett afl Botnsvirkjunar verði allt að 3 MW.

Thor landeldi – álit um matsáætlun

Thor landeldi ehf. áformar uppbyggingu landeldisstöðvar í Ölfusi til eldis á laxi. Stefnt er að framleiðslu á 20.000 tonnum á ári í þauleldi á landi en stöðin verður byggð í þremur áföngum.

Fiskeldi Laxóss á landi við Hauganes í Eyjafirði – álit um matsáætlun

Laxós ehf., áformar að byggja landeldistöð fyrir lax og/eða regnbogaurriða norðan Hauganess við Eyjafjörð. Fyrirhuguð framleiðsla er um 22.000 tonn á ári

Ákvarðanir um matsskyldu

Brennsluofn fyrir dýrahræ og -leifar við Árnes – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð umhverfismati.

Fráveita Hveragerðis - stækkun skólphreinsistöðvar – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð umhverfismati.

Breytingar á Breiðadalslínu 1 í Dýrafirði – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð umhverfismati.

Breytt fyrirkomulag við boranir í Skammadal/ á Reykjum – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð umhverfismati.

Nýtt sláturhús Sláturfélags Suðurlands á Selfossi ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð umhverfismati.

Merkurnáma – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð umhverfismati.

Nýjar borholur í Laugarnesi Reykjavík. Við Engjateig – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð umhverfismati.

Biskupstungnabraut um Geysissvæðið og Tungufljót – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: Framkvæmd háð umhverfismati.

Frekari dýpkun innsiglingar Þorlákshafnar – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð umhverfismati.

Aukin efnistaka á Tungnaáreyrum – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð umhverfismati.

Aukin efnistaka við Ferjufit – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð umhverfismati.

Saltvík – Hænsnabú – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð umhverfismati.

Vatnslögn í Hrunamannahreppi – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: framkvæmd ekki háð umhverfismati.

Nýtt gagnaver Verne við Valhallarbraut – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: framkvæmd ekki háð umhverfismati.

Stokksnesvegur, Almannaskarð-Leirtjörn – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: framkvæmd ekki háð umhverfismati.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS