16. apríl 2026
17. apríl 2026
Aðfluttir greiða hærra leiguverð fyrir smærri íbúðir þegar leigt er af einstaklingum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Aðfluttir leigjendur greiða að jafnaði hærra leiguverð en innfæddir leigjendur þrátt fyrir að íbúðir aðfluttra séu að meðaltali minni
- Hærra leiguverð aðfluttra skýrist að hluta til af því að aðfluttir leigja flestir af einkaaðilum og búa síður í félagslegu húsnæði
- Þegar leigt er af einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu greiða aðfluttir þó 5% hærri heildarleigu fyrir 9% smærri íbúðir
Aðfluttir leigjendur greiddu að meðaltali rúmar 243 þúsund krónur í húsaleigu í janúar 2026 samanborið við tæpar 213 þúsund krónur meðal innfæddra leigjenda, þrátt fyrir að aðfluttir hafi leigt að jafnaði litlu minni íbúðir. Hærra leiguverð aðfluttra skýrist að hluta til af ólíkri samsetningu leigusala og staðsetningu leiguhúsnæðis. Jafnvel þótt tekið sé tillit til þess greiddu aðfluttir að meðaltali 5% hærri heildarleigufjárhæð fyrir um 9% smærri leiguíbúðir þar sem þeir leigðu af einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu HMS um stöðuna á leigumarkaði 2026 sem birt var í lok mars. Nánar verður fjallað um innihald skýrslunnar á Húsnæðisdeginum 2026 sem haldinn verður í húsakynnum HMS miðvikudaginn 22. apríl næstkomandi. Nánari upplýsingar um viðburðinn og skráningu er að finna með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Húsnæðisdagurinn 2026
Samsetning leigusala og staðsetning húsnæðis hefur áhrif
Hærra leiguverð aðfluttra skýrist að hluta til af ólíkri samsetningu leigusala, en af þeim leigusamningum sem voru í gildi í leiguskrá í janúar 2026 leigðu um 44% aðfluttra leigjenda af einstaklingsleigusölum samanborið við um 30% innfæddra leigjenda. Einungis 7% aðfluttra leigjenda leigðu af sveitarfélögum og 15% af óhagnaðardrifnum leigufélögum á meðan tæplega helmingur innfæddra leigjenda leigði af slíkum leigusölum í janúar 2026.
Staðsetning hefur jafnframt áhrif á leiguverð, en leiguverð er að jafnaði hæst á höfuðborgarsvæðinu, lægra í nágrenni þess og lægst annars staðar á landsbyggðinni. Mikill meirihluti leigusamninga í leiguskrá HMS varðar íbúðir sem staðsettar eru á höfuðborgarsvæðinu, hvort sem litið er til aðfluttra eða innfæddra leigjenda, til samræmis við búsetudreifingu þjóðarinnar almennt.
Hallar á aðflutta leigjendur á höfuðborgarsvæðinu
Ef eingöngu er litið til leigusamninga um íbúðir sem staðsettar eru á höfuðborgarsvæðinu og leiguverð er greint eftir tegund leigusala og uppruna leigjenda má sjá að aðfluttir leigjendur greiða að jafnaði 5% hærra heildarleiguverð fyrir um 9% smærri leiguíbúðir þegar leigt er af einstaklingsleigusölum. Meðalfermetraverðið er um 15% hærra.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





