Vegvísir að mótun rannsóknaumhverfis mannvirkjagerðar
Vegvísir að mótun rannsóknaumhverfis mannvirkjagerðar
Vegvísir að mótun rannsóknaumhverfis mannvirkjagerðar
Vegvísir að mótun rannsóknaumhverfis mannvirkjagerðar
Vegvísir að mótun rannsóknaumhverfis mannvirkjagerðar var gefinn út í mars 2024, eftir samtöl og samráð við atvinnulíf, háskólasamfélag og fjölda stofnana sem tengjast rannsóknum í mannvirkjagerð. Vegvísinum er ætlað að vera liður í svari við ákalli um aukið fjármagn og skýrara skipulag fyrir rannsóknaumhverfi mannvirkjageirans. Í vegvísinum eru skilgreindar 16 aðgerðir í þremur flokkum sem eiga að varða leiðina út árið 2025, svo hægt verði að marka framtíðarsýn fyrir málaflokkinn.
Vegvísir að mótun rannsóknaumhverfis mannvirkjagerðar
Í verkefnastjórn vegvísisins sitja:
- Hildur Dungal, fulltrúi innviðaráðuneytisins.
- Jóhanna Klara Stefánsdóttir, fulltrúi Samtaka iðnaðarins.
- Arna Kristín Einarsdóttir, fulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytisins.
- Sigríður Valgeirsdóttir, fulltrúi háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins.
- Þórunn Sigurðardóttir, fulltrúi HMS.
Hlutverk verkefnastjórnar er meðal annars að:
- Fylgjast með framgangi aðgerðanna hverju sinni.
- Stuðla að árangursríkri innleiðingu aðgerðanna í framhaldinu.
- Víkja hindrunum úr vegi eftir því sem við á.
- Bera ábyrgð á framkvæmd tiltekinna aðgerða.
- Tryggja tengsl við aðrar stefnur stjórnvalda
Verkefnastjóri vegvísisins er Þóra Margrét Þorgeirsdóttir (thoram.thorgeirsdottir@hms.is).