Veðleyfi án íbúðarkaupa
Veðleyfi án íbúðarkaupa
Veðleyfi án íbúðarkaupa
HMS er heimilt að veita veðleyfi fyrir láni á undan öllum almennum lánum HMS án þess að um íbúðarkaup sé að ræða að ákveðnum skilyrðum.
Eftirtalin skilyrði verða að vera uppfyllt til þess að heimilt sé að veita veðleyfi:
- Sameiginleg uppreiknuð fjárhæð eftirstöðva láns/lána hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og framar áhvílandi lána má ekki verða hærri en hámarkslán á hverjum tíma.
- Sameiginlegar uppreiknaðar fjárhæðir eftirstöðva lánsins/lánanna hjá HMS og framar áhvílandi lána mega ekki fara yfir 80% af markaðsverði eignarinnar.
- Mat á umsóknum um veðleyfi og afgreiðsla þeirra fer að öðru leyti fram með það að markmiði að jafnræðis sé gætt og að ákvarðanir samræmist hagsmunum HMS og reglum stjórnar HMS.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að veita veðleyfi á undan öllum almennum lánum nema þessum:
- Lánum frá Byggingarsjóði verkamanna.
- Lánum til leiguíbúða eða búseturéttaríbúða.
- Landsbyggðarlánum.
- Óheimilt er að víkja fyrir gjaldeyrislánum.
- Óheimilt er að veita veðleyfi vegna endurfjármögnunar lausaskulda.
- Ekki er heimilt að víkja fyrir lánsveði (sömu aðilar þurfa að vera lántakendur og þinglýstir eigendur eignar).
Fylgigögn
- Ef samanlögð fjárhæð nýs láns og eldri lána HMS fer upp yfir 80% af fasteignamati íbúðar þarf verðmat viðkomandi eignar.
- Sé beiðnin gerð í tengslum við kaupsamning þarf ekki verðmat fasteignasala. Þá þarf að senda afrit kaupsamnings.
- Nýtt/ný lán : Ljósrit af lánsloforði eða afrit af skuldabréfi.
- Afrit af greiðslumati.
- Eldra lán: Útprentun á stöðu lánsins úr tölvukerfi skuldareigandans og ljósrit af skuldabréfi/-bréfum.
- Upplýsingar um ráðstöfun láns/lána sem óskað er eftir veðleyfi fyrir og eiga að fara fram fyrir ÍLS veðbréfi/veðbréfum í veðröð.
Ekki þarf að skila inn verðmati ef sameiginleg uppreiknuð fjárhæð eftirstöðva lána (sem færa á aftar í veðröð) og nýs láns rúmast innan 80% af fasteignamati eignarinnar. Gjald er tekið fyrir veitingu veðleyfa, samkvæmt gjaldskrá HMS. Gjaldinu er bætt inn á lánið sem veðleyfi er veitt fyrir framan og kemur til innheimtu á næsta gjalddaga þess.
HMS er heimilt að hafna því að víkja í veðröð ef vanskil á lánunum eru slík að greiðsluáskorun hefur verið send út vegna lána HMS á viðkomandi eign.