Umhverfismat áætlana
Umhverfismat áætlana
Umhverfismat áætlana
Umhverfismat áætlana
Um umhverfismat áætlana
Umhverfismat áætlana felst í að meta áhrif tiltekinna áætlana á umhverfið og nýta niðurstöður matsins til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum þeirra.
Umhverfismat á að vinna sem hluta að mótun ýmissa áætlana, svo sem skipulagsáætlana sveitarfélaga og áætlana á borð við rammaáætlun og samgönguáætlun.
Ákvæði um umhverfismat áætlana er bæði að finna í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana og í 12. gr. skipulagslaga.
Umhverfismat áætlana felur í sér:
- Umhverfismat þeirrar stefnu sem er sett fram í viðkomandi áætlun. Liður í slíku mati er samanburður á umhverfisáhrifum mismunandi valkosta.
- Kynningu og samráð við almenning og stofnanir um viðkomandi áætlun og umhverfisáhrif hennar, áður en áætlunin er afgreidd.
- Að höfð sé hliðsjón af umhverfismati við afgreiðslu áætlunar.
- Áætlun um vöktun umhverfisáhrifa við framfylgd áætlunar.
Umhverfismat áætlana og mat á umhverfisáhrifum framkvæmda Umhverfismat áætlana er hugsað sem undanfari mats á umhverfisáhrifum einstakra framkvæmda.
Við mat á umhverfisáhrifum áætlunar, gefst tækifæri til að leggja mat á víðtækari umhverfisáhrif þeirrar stefnu sem þar er sett fram og á mismunandi valkosti, til dæmis um mismunandi staðsetningar- og legukosti.
Við umhverfismat einstakra framkvæmda er síðan lagt ítarlegra mat á umhverfisáhrif viðkomandi framkvæmdar og nánari útfærslu hennar.
Hlutverk aðila við umhverfismat áætlana
Að gerð umhverfismats koma ýmsir aðilar, sem gegna ólíkum hlutverkum:
- Sá sem ber ábyrgð á áætlun, ber jafnframt ábyrgð á umhverfismati hennar. Sem dæmi um ábyrgðaraðila má nefna sveitarstjórn, sem ber ábyrgð á umhverfismati aðalskipulags, eða verkefnisstjórn um gerð rammaáætlunar, sem ber ábyrgð á umhverfismati þeirrar áætlunar.
- Opinberar stofnanir og sveitarfélög veita umsagnir um áætlanir sem eru í mótun og umhverfismat þeirra.
- Almenningur getur komið á framfæri ábendingum og athugasemdum við auglýsta tillögu að áætlun og umhverfismat hennar.
- HMS sér um framkvæmd laga og reglugerðar um umhverfismat framkvæmda og áætlana auk skipulagslaga og -reglugerðar sem einnig hafa að geyma ákvæði um umhverfismat áætlana.
HMS:
- Gefur umsögn um matslýsingu til forsvarsaðila áætlunarinnar. Forsvarsaðili útbýr matslýsingu í upphafi áætlanagerðar, þar sem hann greinir frá því hvernig fyrirhugað er að standa að umhverfismati áætlunarinnar.
- Hefur aðgengilegar á Skipulagsgátt þær tillögur að áætlunum og umhverfismat þeirra sem eru í kynningu hverju sinni.
- Varðveitir og miðlar upplýsingum um áætlanir sem hafa verið umhverfismetnar.