Skipulag

Skipulag

Skipulag

Skipulag

Deiliskipulag nær til afmarkaðs svæðis sem myndar heildstæða einingu, svo sem hverfis, hverfishluta, götureits eða húsaþyrpingar.

Í deiliskipulagi eru settir skilmálar um:

  • Mótun byggðar og umhverfis, svo sem um stærðir, staðsetningu og notkun húsa.
  • Yfirbragð byggðar, svo sem um útfærslu og hönnun bygginga og efnisnotkun.
  • Lóðir og almannarými eins og götur, torg, leiksvæði og almenningsgarða.

Byggingarleyfi og framkvæmdaleyfi skulu vera í samræmi við skipulag. Almenna reglan er að byggingaleyfi skuli byggja á deiliskipulagi, en framkvæmdaleyfi geta í tilteknum tilvikum byggt á aðalskipulagi. Lesa meira um byggingarleyfi. Lesa meira um framkvæmdaleyfi.

Hverfisskipulag er einfölduð útfærsla deiliskipulags sem vinna má fyrir byggð hverfi, þar sem ekki stendur til að fara í umfangsmikla uppbyggingu. Í hverfisskipulagi eru ekki gerðar sömu kröfur og í hefðbundnu deiliskipulagi varðandi framsetningu og skilmála. Þar er meira svigrúm til að setja almennar reglur og fyrirmæli um byggingarheimildir, svo sem breytingar og viðbyggingar.

Ferl­ið við gerð deiliskipu­lags