Stjórn HMS
Stjórn er svo skipuð:
- Sigurður Tyrfingsson, formaður
- Jónas Yngvi Ásgrímsson
- Oddný Árnadóttir
- Sigríður Ósk Bjarnadóttir
- Arnar Þór Sævarsson
Til vara:
- Hanna Guðmundsdóttir
- Rúnar Sigurjónsson
Kjarnastarfsemi
Markmið:
Jafnvægi á húsnæðismarkaði
Framkvæmd laga nr. 44/1998 um húsnæðismál sem felst m.a. í að halda utan um húsnæðisáætlanir, lánveitingar á samfélagslegum grunni, greiðslu húsnæðisbóta, úthlutun stofnframlaga, eignarhald á Leigufélaginu Bríeti, rekstri Húsnæðissjóðs, greiningar og birting upplýsinga um húsnæðismarkaðinn og yfirumsjón með samstarfsvettvangi um húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinni (Tryggð byggð).
Í fjármálaáætlun falla verkefni þessa hluta undir málefnasvið 31 (Húsnæðis- og skipulagsmál) og 8 (Sveitarfélög og byggðamál)
Mælikvarðar:
- Uppbygging í samræmi við þörf
- Staðfestar húsnæðisáætlanir
- Íbúðir með húsnæðisstuðning
Á grundvelli laga um opinber fjármál skulu stofnanir móta stefnu árlega fyrir starfsemi sína til að minnsta kosti næstu þriggja ára.
Virkni fasteignamarkaðar
Yfirstjórn fasteignaskráningar en í fasteignaskrá skal skrá allar fasteignir, upplýsingar um lönd og lóðir og hnitsett afmörkun þeirra, mannvirki við þau skeytt og réttindi ásamt því að vinna fasteigna- og brunabótamat allra fasteigna á Íslandi, sbr. lög nr. 6/2001, um skráningu, merki og mat fasteigna og lög nr. 48/1994 um brunatryggingar.
Í fjármálaáætlun falla verkefni þessa hluta undir málefnasvið 31 (Húsnæðis- og skipulagsmál) og 6 (Hagskýrslugerð og grunnskrár), en undir því síðarnefnda er fjallað um miðlun upplýsinga og rekstur á grunnskrám um mikilvæg réttindi; stafrænar lausnir, öryggi, upplýsinga- og þjónustuveitur; grunngerð, öflun, viðhald og miðlun landupplýsinga og stefnumótun, innleiðing og samræming opinberra gagna.
Mælikvarðar:
- Flatarmál lands afmarkað í landeignaskrá
- Lækkun á tækniskuld fasteignaskrár
- Afgreiðslutími matsbeiðna
Markmið:
Skilvirk og sjálfbær mannvirkjagerð
Framkvæmd laga nr. 160/2010 um mannvirki sem felst m.a. í því að stuðla að samræmdu byggingareftirliti um land allt og annast gerð leiðbeininga (þ.m.t. Rb blaða), verklagsreglna og skoðunarhandbóka á fagsviði stofnunarinnar. Jafnframt að stuðla að góðri orkunýtingu við rekstur bygginga, sjálfbærri þróun í mannvirkjagerð, tæknilegum framförum og nýjungum í byggingariðnaði og rekstri Asks mannvirkjarannsóknarsjóðs.
Í fjármálaáætlun falla verkefni þessa hluta undir málefnasvið 31 (Húsnæðis- og skipulagsmál) 7 (Nýsköpun, rannsóknir og þekkingagreinar) og 17 (Umhverfismál).
Mælikvarðar:
- Innleiðing stafræns byggingarleyfis
- Aðgerðum lokið í vegvísi um vistvæna mannvirkjagerð
- Útgáfa leiðbeininga og Rb blaða
Markmið:
Samhæft markaðseftirlit
Stofnunin annast heildarskipulag opinberrar markaðsgæslu í landinu í samvinnu við önnur eftirlitsstjórnvöld, er miðlægt stjórnvald í vöruöryggismálum og samræmingaraðili í markaðseftirliti sem tryggir virkt eftirlit með vöru á markaði, eftirlit með visthönnun orkutengdra vara og orkumerkingum og að mælingar og mælifræðilegar niðurstöður séu réttar og nákvæmar til að vernda hagsmuni neytenda með því að tryggja réttmæta og örugga viðskiptahætti.
Í fjármálaáætlun falla verkefni þessa hluta undir málefnasvið 16 (Markaðseftirlit og neytendamál).
Mælikvarðar:
- Virkt samstarf eftirlitsstjórnvalda
- Eftirfylgni með markaðseftirlitsáætlun HMS
- Birting tilkynninga á Vöruvaktin.is
Markmið:
Draga úr mann- og eignatjónum
Framkvæmd laga nr. 146/1996 um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga sem felur í sér yfirumsjón með rafmagnsöryggismálum á Íslandi, skoðunum á raforkuvirkjum, neysluveitum, öryggisstjórnunarkerfum rafveitna og rafverktaka og markaðseftirliti raffanga.
Framkvæmd laga nr. 75/2000 um brunavarnir sem felur m.a. í sér utanumhald með brunavarnaáætlunum, samræmingu eldvarnareftirlits og slökkvistarfs um land allt ásamt rekstri Brunamálaskólans.
Í fjármálaáætlun falla verkefni þessa hluta undir málefnasvið 31 (Húsnæðis- og skipulagsmál), 8 (Sveitarfélög og byggðamál) og 15 (Orkumál).
Mælikvarðar:
- Virkar brunavarnaáætlanir
- Heimili með viðunandi brunavarnir
- Skoðanir á neysluveitum
Markmið:
Skynsamleg nýting landgæða og þróun byggðar
Framkvæmd skipulagslaga nr. 123/2010 sem m.a. felur í sér að aðstoða sveitarfélög og leiðbeina þeim við skipulagsgerð, gefa út leiðbeiningar og fylgjast með stöðu skipulagsmála sveitarfélaga. Jafnframt að hafa eftirlit með framkvæmd skipulagslaga, að taka á móti og halda utan um allar skipulagsáætlanir með stafrænum hætti og rekstur landfræðilega gagna og samráðgátt.
Framkvæmd laga nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana þar sem hlutverkið er m.a. að taka ákvörðun um hvort tilkynningarskyldar framkvæmdir skulu háðar umhverfismati, að gefa átlit um matsáætlanir og umhverfismat áætlana og veita umsagnir og leiðbeiningar um umhverfismat og framkvæmd matsáætlana. Auk þess framkvæmda laga lög nr. 88/2018 um skipulag haf- og strandsvæða.